Jæja, jæja. Smá skrif til þess að hrista upp í áhugamálinu okkar góða. Næstu helgi er stefnan tekin á Laugarvatn og jafnvel ósinn þar við í Brúará. Er einhver af ykkur veiðimönnum sem hefur reynslu af Laugarvatni, hvar er best að veiða, á bát eða bara hvar á vatninu, hvernig beita kemur til greina og líka hvort einhver hafi fengið einhvern fisk þarna. Vonum svo að þetta áhugamál komi til með að lifna við….. Kv. Gummi.