Loksins kemur korkur um sumarvinnuna mína! :) Allir pylsupakkar eru svona, sama hvort þeir eru frá Borgarnesi, SS, Búrfelli, Íslenskt-Franskt, Goða (öðru nafni Norðlenska helvítinu), Síld og fiski o.s.frv. Ég held svei mér þá að umbúðirnar nýtist best svona og svo er svo einfalt að telja hvað eru komnar margar pylsur samtals ef maður veit hvað pakkarnir eru margir.