Ég get ekki runnað því en ég veit af hverju.

Hér eru nokkur vandamál/lausnir atriði:

V(andamál): Ég fæ error þegar ég runna Worms3D.exe!
L(ausn): Þú verður að runna því í gegnum Run.cmd file-inn í demó möppunni.

V: Þegar ég doubleclicka á run.cmd, spyr tölvan mín með hverju ég vil runna file-inum.
L: Rename-aðu Run.cmd í Run.bat ef þú ert WinME eða Win98 notandi.

V: Þegar ég loada up demóinu og clicka á handsprengjuna og bíð í smástund, þá fæ ég eitthverskonar memory errror.
L: Þú getur ekki runnað demóinu með gömlum AMD örgjörvum eins og AND Athlon og AMD Thunderbird, og ekki heldur örfáum Intel örgjörvum.

Það verður gefið út nýtt demó á næstu vikum sem runnar í AMD og restinni af Intel örgjörvunum. Demóið mun einnig includa bugfixes og nýtt borð, kannski Multiplayer líka.

Ég vil endilega að þetta nýja demó verði replace-að í staðinn fyrir það gamla á Háhraða, þegar það kemur út.

Æjá, ég hafði ekki hugmynd um í hvaða flokk ég átti að láta þennan póst…