Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

fugl
fugl Notandi frá fornöld 35 ára karlmaður
362 stig
„Ef þú smælar framan í heiminn þá smælar heimurinn framan í þig.“

Inception Spoiler (14 álit)

í Kvikmyndir fyrir 13 árum, 8 mánuðum
Ég er búinn að velta einu mikið fyrir mér í sambandi við þessa mynd, þegar bíllinn er að falla í draumi 1 og allt er í þyngdarleysi í draumi 2 vegna þess að honum finnst hann vera þyngdarlaus sá sem er að dreyma hann, af hverju færist þyngdarleysið þá ekki niður í draum 3 þar sem sá sem er að dreyma hann ætti að finna fyrir þyngdarleysi í bæði draumi 1 og draumi 2 (þó svo að draumur 2 skipti höfuð máli í þeim efnum) ég veit að það er erfitt að skilja þennan texta en skora á ykkur að lesa...

Viking fellihýsi til sölu (1 álit)

í Bílar fyrir 14 árum, 11 mánuðum
8 feta Viking fellihýsi til sölu. Hýfibúnaðurinn er bilaður en að öllu öðru leiti í þokkalegu standi. Verð: tilboð Allar upplýsingar gefur Erlingur í síma 6928634 svara hvorki hér né einkapósti

nú lýst mér á (2 álit)

í Bílar fyrir 16 árum
núna er mér farið að lýtast á þetta, vörubílstjórarnir farnir að taka fram hendinni! ég er meira en ánægður :D http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/28/aframhaldandi_umferdarskaerur/

jibbý!!! (2 álit)

í Jeppar fyrir 17 árum, 10 mánuðum
frábært jeppamenn og konur, núna bíða þó nokkrar myndir samþykkis og mun ég reyna að koma einni inn á dag, meira svona, koma með nýja könnun eða e-ð og svo er náttúrulega VOÐALEG þörf á greinum. en myndirnar eru í góðu standi núna :D

Bolur í That's 70's Show (6 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 10 mánuðum
veit einhver hvar ég fæ svona Led Zeppelin bol eins og Steven var í í That's 70's Show sem er í sjónvarpinu akkúrrat núna, hann er BARA TÖFF!!!

Torfæran (1 álit)

í Jeppar fyrir 17 árum, 10 mánuðum
Jæja, núna var að koma góð hugmynd um að halda úti kubbi með stigum úr torfærunni í sumar, eina vesenið er að ég hef ekki hugmynd hvar ég gæti nálgast þessi stig til að setja í kubbinn, veit einhver hvar ég gæti fundið þau? svo væri hægt að hafa upplýsingar hvar og hvenær næstu keppnir yrðu o.þ.h. koma svo, reynum að gera þetta áhugamál virkt!!!! ;)

breytingar (4 álit)

í Jeppar fyrir 17 árum, 11 mánuðum
jæja, núna er ég búinn að endurraða kubbunum aðeins hérna og væri til í að fá smá “feedback” á það hvernig mönnum lýst á þetta, færði könnunina þannig að hún sjáist án þess að fara niður og tók bara út atburðina, enda bara einn atburður skráður og er hann síðan 2002! en já, endilega sendið inn myndir, kannannir og greinar, það er orðið svolítið þurrt hérna, ekkert sem bíður mín til að henda inn svo að það vantar meira…

canon prentari (5 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 11 mánuðum
jæja, núna var ég að djollíast og kaupa mér prentara, Canon pixma iP4200 til að vera nákvæmur. en núna vill hann ekki þekkja blessuð blekhylkin og segir að þau séu ekki í, ég setti þau öll í skv. leiðbeiningum en ekkert virkar, búinn að prufa að taka þau úr og setja þau í aftur en ekkert gengur, ef einhver þarna úti á svona prentara þá spyr ég, lentir þú í þessu vandamáli og ef svo, hvernig leystirðu það?

grikkir lélegir (7 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 11 mánuðum
ég er ekki að fara að nöldra neitt yfir móttökum við silvíu, heldur segja hvað mér finnst fyndið að bæði þegar karl kynnirinn söng í forkeppninni og þegar sigurvegarinn í fyrra söng áðan var bæði spilað af upptöku og þau “lip-sinc”-uðu!!! hversu ömurlegt er það eiginlega? (sást mjög greinilega ef maður horfði stýft á munnana á þeim)

Könnunin (7 álit)

í Sagnfræði fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Skil ekki allveg afhverju þessi könnun á heima á sagnfræði, en samt ætla ég að segja mína skoðun á þessu. Ef að Jesú var sonur Guðs og Guð hugsar öllum stað þá er ekki spurning að hann var búinn að ákveða hvað Júdas átti að gera skv. plani Hans, meina hvort haldið þið að maður sem deyr fyrir Guð sé líklegri til að dreifa boðskapi með sögusögnum eða einn maður sem lifir og verður svona “thing” sem deyr svo? Svo ég er viss um að það er Júdasi að þakka/kenna að Kristin trú sé eins útbreidd og...

Guns of Brixton (4 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 11 mánuðum
man einhver hvað hljómsveitin heitir sem gerði nýjan texta við lagið The Guns of Brixton með Clash og hvað þeirra útgáfa hét? Þessi hljómsveit sem ég er að leita eftir eru einhverjir spæskættaðir búsettir í Bandaríkjunum sem eru vel þekktir fyrir hassreykingar og dópnotkun.

Linux (4 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 12 mánuðum
jæja, þá hef ég tekið þá stóru ákvörðun að hafa gömlu borðtölvuna með linux stýrikerfinu, enda er það ókeypis, auðvelt í uppsetningu og bara hefur allt sem svona gamall vinnuhestur, sem fer ekki í neina leiki eða neitt, þarf. því leita ég á náðir ykkar kæru hugarar með hjálp um hvar ég finn þetta sniðuga stýrikerfi. ég fór á www.linux.org en hún vísar á nokkrar síður sem flestar virðast hafa dáið fyrir svona ári eða tveim árum síðan. er virkilega ekki til nýrri útgáfa af þessu en eitthvað um...

kannanir (8 álit)

í Hugi fyrir 18 árum
ég var að fá ágætit hugmynd. núna þegar maður skoðar kannanir fær maður að vita prósentutölu og hve margir hafa svarað könnuninni í heildina. til að sjá hvað margir hafa svarað þessum og hinum möguleika getur maður allveg reiknað þetta út, en af hverju ekki bara að láta standa innan sviga hve margir hafa kosið þann valmöguleika, þetta er mjög algengt á síðum með kannanir og gæti orðið mjög þægilegt á áhugamálum eins og /jeppar þar sem að meirihlutinn af þeim sem stundar það á ekki jeppa og...

Eldsneytisverð (11 álit)

í Bílar fyrir 18 árum
jæja, núna verð ég að koma þessari umræðu af stað hér… eins og við vitum öll er eitt það dýrasta bensín á almennum markaði einmitt hér á klakanum. við fyrstu hugsun gæti maður haldið að um væri að kenna staðsetningu, að flutningurinn kostaði svona mikið. en svo fer maður að pæla, af hverju er það á tæpar 120 krónur á lítra þegar það er meira en helmingi ódýrara úti. ég get sagt ykkur út af hverju, það er hinn fáránlegi skattur á íslandi, hér er sett eldsneytisgjald á bæði bensín og dísil,...

Furðuleg þessi lögga (12 álit)

í Bílar fyrir 18 árum
ég komst að því í morgun að löggan er furðuleg… þannig er mál með vexti að ég á heima í blokk þar sem að stæðaúrval nær rétt svo lagalegu lágmarki, með merktum stæðum fyrir hverja íbúð (18 stæði þar) og fimm stæðum fyrir gesti og annan eða þriðja bíl á heimilinu og það væri allt í lagi ef að við værum eina íbúðin með aukabíl, en neeeeiii…það eru allavegana þrjár íbúðir með aukabíla og þar af ein með tvo (eða þrjá samtals), svo þið sjáið það að stæðin hérna fyrir utan eru oft full, svo að þá...

Losing Every Day (5 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 1 mánuði
sælir, ekki vitið þið hvort að ég geti nálgast textann við lagið hérna að ofan einhversstaðar?

Könunin (16 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 2 mánuðum
jæja, þar sem að mér hundleiðist í eyðu í skólanum ákvað ég að spyrja ykkur að því hvaða jeppa frá evrópu þið kjósið, er það bara Porsche eða Benz eða eitthvað krassandi eins og Land Rover Defender (sem er ljótur, óþægilegur en samt skilar hann sínu :P)

Huga-Ferð (10 álit)

í Jeppar fyrir 18 árum, 2 mánuðum
jæja, þar sem að þessi vefur er farinn að hrjást af notkunnarleisi ákvað ég að koma með eina góða hugmynd. hvernig væri ef að við jeppaáhugamenn á huga tækjum okkur saman einhvern tíman næsta vetur og drifum okkur á fjöll, þá gætum við hist svona og séð hverja við erum í raun að útúða og skamma :P en já, ég segi næsta vetur, þar sem að kiddi greyið er að gera við hjá sér núna og ég verð þá vonandi kominn á jeppa…annar reddar maður bara hestakerrunni hjá pabba… en hvernig lýst ykkur á þetta?

BMW ást (16 álit)

í Bílar fyrir 18 árum, 2 mánuðum
núna er ég svolldið forvitinn, með ódýrari týpurnar af BMW, þær eru nú ekkert svo frábrugðnar venjulegum fólksbílum, haldið þið kæru hugarar að þeir sem að eru alltaf að tala sem hæðst um hvað BMW séu flottir séu í raun bara skotnir í merkinu. einhvern vegin er ég viss um að ef að maður tæki einn af þessum ódýrari bimmum (t.d. 315i) og myndi kannski setja skoda merki á hann, og taka allt sem benti til að þetta væri BMW, að sumir myndu bara segja: “Ojj, skodi ljóti, þetta er rusl” hvað haldið...

junckmail á hotmail (21 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
vá hvað það er pirrandi að það sé ekki lengur hægt að blocka ákveðna sendendur á hotmailinu maður, fer rosalega í taugarnar á mér að vera alltaf að fá póst frá Game Spot (sem að ég skráði mig í þegar ég var ungur og vitlaus og lostna svo ekki við :@ )

fífl (19 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
vá hvað fólk er vangefið í höfðinu hérna á höfuðborgarsvæðinu…EF AÐ MAÐUR KEMST EKKI ÁFRAM Í BREKKU VERÐUR MAÐUR AÐ FARA AFTURÁBAK… var að keyra upp brekku á druslunni hans afa (ekki frábær dekk) og fyrir framan mig er bíll stopp og ég auðvitað stoppa. svo bakka ég til að gefa honum pláss en þá er einhver kelling fyrir aftan mig sem byrjar bara að flauta og ég hugsa “ÉG SÉ ÞIG, HALTU KJAFTI” og bakka bara. svo ætla ég að reyna að komast af stað en kemst ekki, þá ætla ég að bakka til að geta...

Tiger á Írlandi (7 álit)

í Húmor fyrir 18 árum, 3 mánuðum
On a golf tour in Ireland, Tiger Woods drives his Chrysler into a petrol station in a remote part of the Irish countryside. The pump attendant, obviously knows nothing about golf, greets him in a typical Irish manner completely unaware of who the golfing pro is. “Top of the mornin' to yer, sir” says the attendant. Tiger nods a quick “hello” and bends forward to pick up the nozzle. As he does so, two tees fall out of his shirt pocket onto the ground. “What are those?, asks the attendant....

þýskukennarinn minn (18 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
ohh…ég verð aftur með helvítis sama þýskukennara og í fyrra…sú manneskja fer svo í taugarnar á mér…en ég ÆTLA að ná því að hún kennir víst bara 103…varð bara að koma þessu frá mér (hei…þetta er nöldur korkur og maður má nöldra hér eins og maður vill)

skipting (8 álit)

í Bílar fyrir 18 árum, 3 mánuðum
jæja…það kom að því…skiptingin var að hrynja í bílnum hjá mér…eða ég er nokkuð viss… eða er ég kannski nógu heppinn til að að það sé bara converterinn sem er farinn ef að hún vill eiginlega bara ekki skipta á milli og smellur svo með látum í gírinn…svo að bakkið sé dottið út…OG Overdrive-ið…plís segið mér það…nenni ekki að fara að eyða allt of miklu í þetta helvíti…

eyðsla (25 álit)

í Bílar fyrir 18 árum, 3 mánuðum
ég ákvað að mæla eyðsluna á bílnum mínum og hún kom mér þægilega á óvart, en hún var 6,3 lítrar á hundraðið í langkeyrslu, en þetta er Hjondæ Accident… en ég er forvitinn, hvað eyðir bíllinn þinn og hvaða týpa er hann…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok