Glæsilegt minn rass. Áramótaávarp Davíðs var þvílík lofræða um eigin ágæti og er eingöngu sönnun þess að hæstvirtur ráðherra er uppfullur af ranghugmyndum. Tvö dæmi: –Stöðugleiki í íslenskum stjórnmálum er slíkur að verðbólga er einungis 1.5% hærri en spár sögðu til um.– Þetta stöðugleikakjaftæði er orðið fullþreytt. Atgervisflótti af landsbyggðinni, svínarí í garð öryrkja og annara undirmálsmanna, áætlanir um álver fyrir austan allar í lausu lofti, olíuverð á fleygiferð, kvótadómur, herinn...