Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Nú verður allt að verða vitlaust! (6 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum
Kæru vinir Í gær horfði ég á Ómar Ragnarsson dásama það land sem á að fara undir Hálslón við byggingu Kárahnjúkavirkjunar og hafði gaman af. Það er náttúrlega ótrúleg óskammfeilni í ráðamönnum þjóðarinnar og ekki síður Landsvirkjunar að halda því fram að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að virkja Jökulsá á Dal. Lónið sem á að stjórna rennsli í virkjunina verður ónýtt á 400 árum og eftir verðu 70 metra þykkt lag af rokgjörnum jökulleir, öðru nafni eyðimörk. Landsvirkjunarmenn sögðu meira að segja...

Nokkur orð um póstmódernisma - æfing í heimspeki (8 álit)

í Heimspeki fyrir 23 árum
Ég sá í einni greinninni hér að neðan einhverskonar skítkast í póstmódernisma en um leið að menn kæmust ekki út úr honum vegna þess að hann hefur mótað alla heimspeki o.s.frv., o.s.frv. Í þeim pælingum finnst mér brenna svolítið við að menn líti á póstmódernisma sem aðferðafræði. Það vill vissulega brenna við að alvöru fræðinmenn noti póstmódernisma sem aðdráttarafl í titlum á bókum og ritum en ég tel mjög mikilvægt að menn hætti að nota póstmódernisma sem aðferðafræði og líti á hann sem...

Hættulaus íþrótt? (13 álit)

í Box fyrir 23 árum
Las eftirfarandi á mbl.is Hnefaleikari lést eftir bardaga Nítján ára gamall bandarískur hnefaleikari lést af völdum heilaáverka um helgina eftir að hafa sigrað í fyrsta bardaga sínum sem atvinnumaður. Hann vann bardagann með rothöggi í fyrstu lotu og fagnaði með því að klifra upp á kaðlana. Þegar hann fór aftur niður í hringinn og ætlaði að ganga í horn sitt hné hann niður og lést síðar á sjúkrahúsi. Pilturinn hét Cresencio Mercado og er fæddur í Mexíkó. Hann keppti í fjaðurvigt í Pueblo í...

Landvirkjun í blekkingarleik (4 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þessi frétt var á mbl.is áðan. ———- Ætla má að bættar samgöngur á hálendishluta fyrirhugaðrar Kárahnjúkavirkjunar fjölgi í heild ferðamönnum þar um slóðir en að ýmsir þeir sem gera miklar kröfur um lítt snortið land muni ekki sætta sig við virkjunarframkvæmdir og færa sig um set. Þetta kemur fram á vef Landsvirkjunar um Kárahnjúkavirkjun og er tekið úr greinargerð um ferðamál og samgöngur sem Landmótun ehf. landslagsarkitektar gerðu í tengslum við mat á umhverfisáhrifum Kárahnjúkavirkjunar...

Öskudagur - kennum börnunum (8 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Ég er Akureyringur og aldist upp við Öskudaginn sem eina af mestu karnivalhátíðum ársins. Í dag er ég hins vegar límdur við tölvuskjá í Hafnarfirði og hneykslan mín er óendanleg í dag, Öskudag. Hingað kemur hver hópurinn á fætur öðrum og biður um að fá að syngja fyrir nammi. Gott og vel. Þetta gerði ég líka sem barn en nú er reginmunur á. Það lá allavegana svolítil vinna á bak við það sem við vorum að gera. Það voru a.m.k 10-20 söngæfingar þar sem við lærðum lög og texta. Lög eins og Hafið...

Til varnar nýjum skatti (12 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Þessi grein er skrifuð í anda máltækisins “Don't float through life - make waves.” Það er allt að verða vitlaust. Út af þessum skatti. Menn fara hamförum hér á huga og víðast hvar annars staðar. Ég tel hins vegar að menn séu of reiðir til þess að geta horft á málin á eðlilegum forsendum. Málið er kannski ekki eins fáránlegt og ætla mætti. Hér eru nokkrar staðreyndir og hugleiðingar mínar um þær: Sú tækni að endurframleiða geilsadiska með tónlist, án þess að gæði tapist, er fyrir hendi. Óháð...

Eurovision - in English (31 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Fátt hefur farið hærra í íslensku þjóðfélagi að undanförnu en barátta íslenskra Júgurvisjón þátttakenda fyrir því að mega syngja á ensku. Talað hefur verið um sjálfsagðan rétt listamanna til að keppa í keppninni á sínum forsendum. Vissulega er margt til í því og margir haft margt gott til síns máls. En þó eru nokkrir hlutir sem fara í taugarnar á mér í þessari umræðu (eins og svo víða annarsstaðar þar sem fólk fer á flug um mannréttindi og reglur). Í fyrsta lagi eru það raddirnar sem heimta...

Hvað er gott? (34 álit)

í Hljóðfæri fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Nú er í gangi hérna hundraðasta greinin um það hver sé besti gítarleikari í heimi. Þessi sandkassaleikur er nú að verða pínulítið þreytandi og spurning hvort að við reynum að lyfta umræðunni á hærra plan. Hvernig væri til dæmis að ræða muninn á Jimmy Page og Krik Hammet? Spá svolítið í græjurnar sem þeir eru með og reyna að komast að því hvað gerir þá góða. Dæmi: Einn af mínum uppáhaldsgítarleikurum er Mike McReady í Pearl Jam. Ferlega skemmtilegur sólógítarleikari sem fyllir skemmtilega upp...

"Það má ekkert gera á Íslandi" - vælið (61 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Enn og aftur poppar þetta helvítis rugl upp hérna á huga. “Það er allt bannað á Íslandi og við eigum svo rosalega bágt af því að við megum ekki gera neitt. Þetta er ömurleg forræðishyggja.” Reynið nú einu sinni að rökstyðja mál ykkar. Það sem að kemur oftast upp sem dæmi um forræðishyggju og frelsisskerðingu eru eftirtalin atriði: Bannað að kaupa vín í kjörbúðum. Kommon, er ykkur algerlega ofaukið að þurfa að fara í sérstaka búð til að kaupa vínið? Er það í alvöru talað mannréttindaskerðing...

Úranmengun á Balkanskaga (2 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Er þetta ekki dæmigert? Nú eru einstaka aðilar innan NATO að átta sig á því að stríðsbrölt sé ekki að fullu heilsusamlegt. Hermenn þeirra hrynja niður úr krabbameini og alls kyns óþverra eftir að hafa andað að sér úranmenguðu lofti. Enn og aftur eru Vesturlönd og féttamenn þeirra svo hrikalega siðblindir og vitlausir að þeim virðist hreinlega ekki detta í hug að hugsanlega hafi fólkið sem þarna býr hafi líka orðið fyrir mengun. Nei, frekar á að senda alla hermenn NATO inn á klósett með glas...

Umhverfisvernd og virkjanir (10 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Nú hafa orðið stórtíðindi í Noregi. Stoltenberg forsætisráðherra þeirra hefur ákveðið að hætta við þrjár stórar vatnsaflsvirkjanir á árinu og segir að óspillt náttúra sé að verða svo dýrmæt að nú sé rétt að gefa henni frið. Viðbrögð náttúrusvínanna í framsókn og sjálfstæði eru náttúrulega háðsleg og niðurlægjandi fyrir allt vitiborið fólk: Arnbjörg Sverrisdóttir, sjálfstæð í austri segir: “Norðmenn hafa aðra orkugjafa en við og búa við aðrar ástæður. Við eigum nóg víðerni og ég sé ekki að...

Napster í vondum málum (25 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég setti þessa grein á MP3 áhugamálið en datt í hug að hún ætti kannski frekar heima hér. Allavegana Samkvæmt frétt mbl.is hefur napster nú lögsótt verslun eina fyrir að selja og dreifa fatnaði með merki fyrirtækisins. Fréttaskýringin segir: Netmiðlarinn Napster hefur átt undir högg að sækja í málavafstri sínu við samtök hljómplötuframleiðenda í Bandaríkjunum en nú hefur miðlarinn lögsótt sportvöruverslun á Netinu. Sport Service selur vörur með merki Napsters, sem er vera í kattarlíki, og...

Um gítara og effekta og dót (14 álit)

í Hljóðfæri fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Halló halló Mér þykri þetta áhugamál ekki alveg nógu virkt, þannig að ég ætla að gera mitt til að auka greinaflæðið. Hvað segja menn um svona multi effekt gítargræjur. Núna er til dæmis hægt að fá ódýrar græjur með forstilltum effektum: gröns, metall, o.s.frv. Sjálfur er ég ekki hrifinn af þessu. Ég komst nebblega að því að það er gítarinn sjálfur og magnarinn sem skiptir mestu máli. Ég er með Godin LX III gítar sem hefur eitt það stórkostlegasta sustain sem ég veit um og allt í einu gat ég...

Enn um Stóra-Dóm (3 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Það kætir mitt litla geð þegar eftirlitsstofnanir ríkisvaldsins setja ofan í við yfirgangsstjórn Davíðs Oddsonar og Halldórs Ásgrímssonar. Í kjölfarið á dómi Hæstaréttar hefur margt sniðugt komið fram en það sem mér finnst allra best er hinn hrikalegi hægagangur í stjórnvöldum í þessu máli. Eru menn alveg búnir að gleyma því að rétt fyrir jólaleyfi alþingis sagðist Davíð ekkert skilja í því að stjórnarandstaðan ætlaði sér að hægja á sameiningu ríkisbankanna. Hann sagði að menn ættu heldur að...

Pabbi... (18 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ok, ég á von á barni með kærustunni minni. Það er náttúrulega alveg geggjað. Þetta er okkar fyrsta og maður er þess vegna alveg grænn og mig langar bara svona að starta umræðu um þessar bækur og bæklinga og dót sem í boði eru fyrir foreldra. Mér finnst eins og þær séu allar fyrir mömmuna. 99% bókarinnar Barn, meðganga fæðing eru um mömmuna og það litla sem stendur um pabbann er að vera ábyrgur, sýna stuðning og nudda konuna (smá einföldun náttúrulega). Og það sem meira er: barnið og pabbinn...

Um frelsi einstaklingsins og nýfrjálshyggju. (13 álit)

í Stjórnmál fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Umræðan hér á Huga er að mörgu leyti áhugaverð. Sérstaklega hef ég haft gaman af því að lesa fjölda greina um áhugaverð málefni eins og aukið frelsi í áfengissölu, hnefaleika o.s.frv. Mér þykir hins vegar rétt að staldra aðeins við eitt hugtak sem tröllríður öllum þessum hugmyndum en það er “frelsið.” Það er að verða ein ömurlegasta og ófrumlegasta klisja sem maður heyrir að krefjast réttar síns í nafni frelsis einstaklingsins. Við höfum fylgst með ungum sjálfstæðismönnum fara hamförum í...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok