Mér finnst sonur hans, Carl P.E. Bach æðislegur. Ég hef spilað flautu sólóverk eftir hann og er alveg ástfangin. Mér finnst alltaf bara talað um “Old Bach”. Ég er nú samt ekkert mikið inn í þessu. Ég er nú kannski of fáfróð til þess að skrifa hér inn, en ég alveg elskaði þetta verk sem ég spilaði. Ég spilaði tvo kafla á 4. stigi. Gekk alveg ljómandi… Skemmtilegt að skrifa um klassík, ekki alveg jafn tjah eftirsótt umræðuefni eins og rifrildi útaf gítarbúðum! Kv.Elle