Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 35 ára kvenmaður
1.508 stig

Tilvitnanir sem tengjast Queen (4 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ég ákvað að halda áfram með þessar tilvitnanir sem virðast vera svo vinsælar :) Þetta eru tilvitnanir í meðlimi Queen og nokkra aðra tónlistamenn um Queen. Svo getið þið séð mikið fleiri á queenie.tk ef þið hafið áhuga, ég gat ekki sett þær allar :P “If you don't like us, well, fuck you!” ~ Roger Taylor “Fuck today, it's tomorrow.” ~ Freddie Mercury “I had this idea… I wanted the sound to sing and have that thickness but yet still have an edge so that it could articulate. So my dad and I...

Hjálp (2 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Ég er alltaf mjög lengi að öllu, sérstaklega að lesa og það hefur truflað mig nýlega í skólanum. Mamma mín er að læra sérkennslu og hún fékk að taka lestrarpróf á mér til að æfa sig. Hún komst að því að ég er ekki lesblind en með lestrarhraðann 248 atkv. á mín. en í 7. bekk á maður helst að komast upp í 300 (ég er á fyrsta ári í framh.) Ég er líka með mörg einkenni athyglisbrests (ADD) en hef ekki verið greind. Þetta er kannski ekkert merkilegt en það skrítna er að þrátt fyrir þetta gengur...

Hjálp! (2 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Hefur einhver hérna lesið Et Helvedes Hus eða veit hvar ég get fengið glósur úr henni? Ég er alveg í vandræðum. Ég er ekki ein af þeim sem nenni ekki að lesa bækurnar sem er sett fyrir, ég er bara svo óheppin að ég er með hægan lestrarhraða en samt ekki lesblind og komst í DAN 103 en þar er búist við að maður geti lesið nokkuð hratt. Og ég er ennþá lengur að lesa dönsku. Ég á að fara í próf úr þessarri bók á fimmtudaginn en ég er að gefast upp. Ég er þegar búin með 1 íslendingasögu, 1...

Video (8 álit)

í Vefsíðugerð fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég er búin að uploada videoum á einhverju freevideoblog en mig langar að setja þau á síðuna mína (folk.is) Ég er með html fyrir þetta en það virkar ekki að setja þetta video. Veit einhver hvernig á að setja svona video á síðu (sjá hérna) eða einhverja aðra síðu sem er hægt að uploada videoum á þannig að hægt sé að setja á aðrar síður?

Hjálp! (6 álit)

í Blogg fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Veit einhver html kóða til að setja video á síðu? Ég er búin að finna stað til að uploada videoum á netið en mig langar svo að geta sett þau á síðuna mína en ekki bara link. Takk fyrirfram

Vefpúki (13 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Mig langaði að koma einu á framfæri og ég held að þetta sé besti staðurinn … Margir hérna eru alveg hræðilega lélegir í stafsetningu þannig að það er erfitt að skilja þá en það er líka leiðinlegt þegar allir eru að leiðrétta fólk. Svo ég legg til að allir nýti sér vefpúkann þegar þið sendið inn greinar. Það er mjög þægilegt og eyðir stórum hluta af skítkasti hérna http://vefur.puki.is/vefpuki/

Hlakka til (28 álit)

í Hátíðir fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Þegar ég var lítil hlakkaði ég alltaf mjög mikið til jólanna eins og flestir aðrir. Svo fór þetta að minnka þegar ég varð eldri og í fyrra (þegar ég var í 10. bekk) fannst mér jólin ekkert sérstök og ég var eiginlega með jólastress og leiðindi. Núna er ég búin að búa á heimavist í 2 mánuði og kemst ekki alltaf heim um helgar. Þar á undan var ég í burtu nærri því allt sumarið. Þá er eins og jólin séu 10 sinnum skemmtilegri því þá verð ég heima og ég get verið með vinum mínum sem búa heima :D...

Vinir (3 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég er búin að eiga slatta af vinum gegnum árin og ég er búin að komast að einu merkilegu. Ég er stelpa og hef þess vegna oft átt vinkonur en á seinni árum hefur það verið erfitt því stelpur þurfa alltaf að gera svo mikið úr öllu. Stelpur virðast alltaf vera í fýlu út í hvora aðra og ég er búin að missa samband við flestar vinkonur mínar (nema þær albestu). Svo er ég nýfarin í framhaldsskóla og á heimavist svo ég hef kynnst fullt af nýjum krökkum og eiginlega einu sem ég er búin að kynnast...

Lög (23 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Getið þið sagt mér einhver góð lög? Ég fíla Queen, Pink Floyd, Jethro Tull, Led Zeppelin og fleira. Mig langar að kynnast einhverjum fleirum gullaldarhljómsveitum eða tónlistarmönnum … Ástæðan fyrir þessum korki er að ég er að skoða tölvu sem er með nærri því hvaða tónlist sem er, 78 gb eða 20.300 lög!!! Og ég hef kost á að fá eitthvað af þessu. Ég veit bara ekki hvar ég á að leita því það er svo mikið … Takk :)

Chat (29 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég veit að það er eitthvað chat hérna, eða var allavega. En það fer enginn inná það. Af hverju ekki að hafa eitthvað svona opið chat hérna á forsíðunni sem maður fer sjálfkrafa inná þegar maður fer á huga. Bara skrolla niður til að sjá gluggann eða eitthvað. Það myndi eyða allavega eitthvað af þessum rusl korkum hérna. Maður gæti líka verið það þegar manni leiðist eða þegar maður vill tala við einhvern. Hvað segið þið? Er þetta léleg hugmynd?

Myndir (1 álit)

í Jazz og blús fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Voru stjórnendur að kíkja inná? 11 nýjar myndir samþykktar á einum degi!!

Vöðvabólga (23 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég er í smá vandræðum. Ég er búin að vera veik (bara einhver pest) og svo er ég búin að vera með hausverk líka. Ég tek venjulega eina verkjatöflu við hausverk en þessi er miklu verri en venjulega og tvær duga ekki. Hann er líka aðallega öðru megin í hausnum. Ég fór til læknis og hann sagði að hausverkurinn væri útaf vöðvabólgu í hálsinum og að það virkaði ekki að taka verkjatöflur … Vitiði um einhver góð ráð við slæmri vöðvabólgu?

Kettir (1 álit)

í Kettir fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Ég hef oft heyrt að hundar eigi húsbónda en kettir eigi þjóna. Ég var bara að pæla hvernig þetta er hjá ykkur. Mín kisa hlýðir mér alveg og ég þarf ekkert að þjóna henni en mamma mín er þjónninn hennar. Endilega segið frá ykkar kisum :)

A Saucerful of Secrets og The Wall (15 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég var að kaupa mér diskinn A Saucerful of Secrets og langaði bara að vita hvernig hugurum finnst hann. Það eru svo margir sem hlusta á Pink Floyd hérna. Mér finnst hann mjög góður nema Jugband Blues, ég fíla það ekki alveg. Annars mjög góður diskur. Svo keypti ég líka The Wall myndina. Geðveik mynd! Hún er bæði geðveikt flott og líka bókstaflega geðveik. Er Roger Waters geðveikur eða er þetta bara sýran? Allavega fannst mér partarnir sem eru teiknaðir flottastir. Það er hægt að sjá eitthvað...

Jagúar og lúðrasveit æskunnar (6 álit)

í Músík almennt fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Lúðrasveit æskunnar í stjórn hljómsveitarinnar Jagúars mun spila á morgun 17 sept klukkan 14:00 í Vetrargarðinum í Smáralind. Frítt inn. Allir að mæta! Lögin sem verða spiluð eru allavega One Of Us, Watermelon Woman og Funky Fried Chicken.

Könnunin (3 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Mig langaði bara að hrósa Megadave fyrir að koma með góða lausn á algengu vandamáli í könnununum sem hafa verið gerðar hér á huga! Það er svo leiðinlegt þegar vantar svarmöguleika svo af hverju ekki að hafa einn möguleika “vantar svarmöguleika” :P Það er svo leiðinlegt þegar er alltaf verið að kvarta yfir þessum könnunum

Gullaldarmaðurinn (7 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég ætlaði að senda inn umsókn um að vera Gullaldarmaðurinn og ýtti á “sjá meira”. Þá kom eitthvað um að ég væri ekki admin og gæti ekki breytt korkinum … Hvert á ég að senda þetta?

Hárlos ... aftur (4 álit)

í Kettir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég sendi inn kork um að kisan mín væri með mikið hárlos um daginn. Ég er búin að greiða henni en hún fer ennþá úr hárum og það er ekkert smá mikið af hárum sem fer í hárburstan þegar ég greiði henni! Er þetta eðlilegt? Hún hefur ekki fengið nýjan mat eða neitt svoleiðis …

GPRS (4 álit)

í Farsímar fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég er í smá vandræðum með GPRS í símanum mínum. Fyrst eftir að ég fékk hann gat ég bara stundum farið á Wap en svo sagði mér einhver að það þyrfti að sækja einhverjar stillingar fyrir það. Ég gerði það og eftir það hef ég aldrei komist á WAP eða lesið MMS. Svo prófaði ég að setja kort frá vinum mínum í símann og þá virkaði GPRSið … bara ekki mitt kort … Ég er búin að skipta þrisvar um kort og það virkar aldrei. Ég er líka búin að prófa að fikta í þessum stillingum (Data account) og gera það...

Monty Python áhugamál? (32 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Hvað finnst ykkur?

Eins (6 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég er nýbúin að fatta eitt merkilegt. Laglínan í The invisible man með Queen er alveg eins og í In charge of my heart með The Cross (hljómsveitin sem Roger Taylor, trommari Queen, var í) Það er kannski ekki skrítið því Roger Taylor samdi bæði lögin. Svo heyrði ég Bad með Michael Jackson og það er líka alveg eins! Ótrúlegt að það eru 3 eins lög, samt eru viðlögin ekki eins. Bara laglínan …

Könnunin (3 álit)

í Músík almennt fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Hvað ef manni finnst allar þessar hljómsveitir lélegar? Setjið annað/hlutlaus!

bekkjarkerfi/áfangakerfi (12 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Ég er í 10. bekk og er búin að vera í starfskynningum og fyrirlestrum. Um daginn var fyrirlestur um framhaldsskóla og þar var m.a. talað um bekkjarkerfi og áfangakerfi. Ég hef heyrt að það sé gott að fara í áfangakerfi ef maður er annaðhvort góður að læra eða lélegur, ekki svona venjulega góður, því þar er hægt að fara hægar og hraðar. Þar er líka hægt að fá metið sem maður er búinn með. T.d. er þýska kennd í mínum skóla (9-10 bekk) Í bekkjarkerfi er ekki hægt að fara hraðar en aðrir og ef...

Asnaleg spurning (12 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Það var ein spurning mjög skrítin í náttúrufræðiprófinu. Ég spurði kennarann minn og hún sagði að það væri ekkert rétt … Það var þessi með þotuna: María heyrir í þotu á heiðskýrum degi. Hún kemur ekki strax auga á þotuna. Ástæða þess er líklega að ljósið … P berst hraðar en hljóðið R er orkumeira en hljóðið S ferðast á minni hraða en hljóðið T fer styttri vegalengd en hljóðið Það er ekkert rétt, er það? P ef það berst hraðar ætti hún að sjá hana áður en hún heyrir í henni R Orkumeira ??? S...

Hraði ljóssins (9 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Man einhver hvað hraði ljóssins er mikill?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok