Ég er í smá vandræðum með GPRS í símanum mínum. Fyrst eftir að ég fékk hann gat ég bara stundum farið á Wap en svo sagði mér einhver að það þyrfti að sækja einhverjar stillingar fyrir það. Ég gerði það og eftir það hef ég aldrei komist á WAP eða lesið MMS.

Svo prófaði ég að setja kort frá vinum mínum í símann og þá virkaði GPRSið … bara ekki mitt kort … Ég er búin að skipta þrisvar um kort og það virkar aldrei. Ég er líka búin að prófa að fikta í þessum stillingum (Data account) og gera það sem stendur á siminn.is …

Vitiði hvað er að eða hvað ég get gert?