Ég er í smá vandræðum. Ég er búin að vera veik (bara einhver pest) og svo er ég búin að vera með hausverk líka. Ég tek venjulega eina verkjatöflu við hausverk en þessi er miklu verri en venjulega og tvær duga ekki. Hann er líka aðallega öðru megin í hausnum. Ég fór til læknis og hann sagði að hausverkurinn væri útaf vöðvabólgu í hálsinum og að það virkaði ekki að taka verkjatöflur …

Vitiði um einhver góð ráð við slæmri vöðvabólgu?