Ég var að kaupa mér diskinn A Saucerful of Secrets og langaði bara að vita hvernig hugurum finnst hann. Það eru svo margir sem hlusta á Pink Floyd hérna. Mér finnst hann mjög góður nema Jugband Blues, ég fíla það ekki alveg. Annars mjög góður diskur.

Svo keypti ég líka The Wall myndina. Geðveik mynd! Hún er bæði geðveikt flott og líka bókstaflega geðveik. Er Roger Waters geðveikur eða er þetta bara sýran? Allavega fannst mér partarnir sem eru teiknaðir flottastir.

Það er hægt að sjá eitthvað af þessum teiknuðu pörtum hér:

http://www.allfloyd.com/gallery/Mpegs.html