Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 35 ára kvenmaður
1.508 stig

Óheppni (54 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég verð bara að fá að nöldra aðeins. Fyrir viku byrjaði ég að verða veik, hálsbólga, vöðvabólga og hausverkur. Ég átti að vera að vinna (í búð) og ætlaði að hringja til að láta vita að ég kæmi ekki og fara svo að sofa. Ég hringdi örugglega 20 sinnum og enginn svaraði! Svo þegar ég loksins gafst upp gat ég ekki sofnað aftur … Svo þegar ég var að fara að borða var hringt í mig til að spurja hvort ég kæmi ekki!! Svo má ég eiginlega ekki missa úr skóla svo ég mætti alla vikuna hálf-slöpp og með...

Sýking í auga (16 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég vaknaði í morgun við það að ég gat ekki opnað augað. Ég kíkti í spegil og sá að augað er rautt og sokkið og það lekur gröftur úr því. Hefur einhver reynslu af svona sýkingum? Er ekki bara best að þrífa augað með hreinum þvottapoka og tala svo við lækni?

Textar úr Hárinu (7 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Veit einhver um síðu á netinu með textum úr söngleiknum Hárinu? Á íslensku, kannski ensku líka … Allavega reyndi ég að leita á google og fann bara einhverjar gelgju-bloggsíður um að einhver hafi litað á sér hárið :S Takk fyrirfram :)

Drengene fra Sankt Petri (4 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég var að pæla hvort einhver eigi glósur úr þessarri bók. Það væri vel þegið … Ég er í smá vandræðum því ég þarf að lesa 2 aðrar bækur og les mjög hægt. Ég ákvað að lesa þessa ekki því ég er í góðum málum í dönsku og held ég sé ekki að falla. Það væri samt ágætt að allavega ná yfir 5 (6 er lægsta einkunn sem ég hef fengið, ég hef aldrei fallið) svo ég væri alveg til í að fá glósur. Endilega ef þið hafið lesið bókina og munið eftir henni að segja allavega eitthvað :) Ég er búin að sjá myndina...

Frönskuverkefni (21 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég myndi setja þetta annarsstaðar á huga en hérna eru miklu meiri og jákvæðari viðbrögð við svona korkum :) Ég er að gera frönskuverkefni (á íslensku) þar sem ég á að skrifa 2 bls. um franska borg. Ég valdi borgina Dijon en ég get ekki skrifað heilar tvær bls. um þetta. Ég hef reynt að leita að upplýsingum á google en eina sem ég finn eru uppskriftir sem innihalda Dijon sinnep. Er einhver hérna fróður um landafræði eða kann mjög vel á leitarsíður sem getur hjálpað mér? Og eitt enn, finnst...

Forrit? (7 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég er að læra stærðfræði og mig vantar eiginlega grafískan vasareikni til að setja inn fall. Ég hef bara ekki ennþá keypt hann því það er svo dýrt! Allavega stendur í bókinni að maður eigi að nota reiknivél eða tölvu … Mér datt í hug hvort það væri kannski til á netinu. Hvað á ég þá að skrifa í google? Eða veit einhver um svona forrit?

Tetris (4 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 1 mánuði
Veit einhver hérna um góðan tetris á netinu sem ég get downloadað í tölvuna mína og spilað offline? Einhver gamall og einfaldur og ekki með einhverju þrívíddar bulli eða sérstökum borðum og svona … Bara þennan gamla einfalda. Ég spurði á forsíðunni en fáir nenntu að svara mér svo ég treysti á ykkur :)

Intermezzo (2 álit)

í Klassík fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég er ekkert að stigahórast hérna :P (sendi inn 2 korka í kvöld), mér datt bara í hug að spurja að einu hérna. Hefur einhver hérna spilað Intermezzo eftir Atla Heimi Sveinsson? Lagið er allt bundið og “fljótandi” (get ekki alveg útskýrt það) en svo er fimmóla í endann sem er slitin. Það er samt ekki merkt sérstaklega inná að það eigi að vera slitið og kennarinn minn heldur að það eigi að vera bundið af því annars er það svo allt öðruvísi en lagið. Ég held að hann hafi gert þetta þannig að...

Á ég ... (3 álit)

í Klassík fyrir 18 árum, 1 mánuði
… að senda inn grein hérna sem ég sendi inn á hljóðfæri um daginn? Af því það er kominn stjórnandi og mig langar að vera með í að gera þetta áhugamál virkt. Ég hef bara engan tíma til að skrifa grein því ég er að drukkna í heimavinnu. Verum dugleg að senda inn efni :) Er það ekki?

Tetris (4 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Vitið þið um einhvern góðan tetris leik sem er hægt að downloada á netinu? Ekki svona demo sem dugir í 2 daga. Vitið þið um einhverja fleiri svipaða addictive leiki? Eitthvað svona eins og tetris. Takk fyrirfram

Skólinn (22 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Hvað er að kennurunum mínum? Einn mánuð er ekkert að gera í skólanum og svo allt í einu eru þeir allir með próf, bækur og erfið dæmi … Ég þarf í þessarri viku að lesa 80 bls. í Laxdælu (ég er búin að lesa 25 og það er ennþá verið að telja upp persónurnar), eina bók í ensku og eina í dönsku (allavega að komast frekar langt í henni) og svo þarf ég líka að gera 9 bls. í stærðfræði sem ég átti að vera löngu byrjuð á en ég var veik og vissi ekki um það. Ekki nóg með það heldur get ég hvergi keypt...

Mótmæli (14 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1188844 Hverjir hérna ætla að mæta? Ég kemst ekki því ég er hinu megin á landinu en ég vona að sem flestir mótmæli þessu.

Pæling varðandi endann á 6. bókinni. (10 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég hef mikið pælt í endanum á 6. bókinni síðan ég las hana … Mér finnst auðvitað hræðilegt að Dumbledore sé dáinn en ég er búin að sætta mig við það. Það sem ég hef mestar áhyggjur af er hver tók helkrossinn sem þeir Harry fóru að ná í. Hvað átti þessi skammstöfun að þýða? Vissi Dumbledore ekki af þessu? Af hverju er Rowling að fórna honum fyrir þetta? Það hlýtur að vera góð ástæða fyrir þessu öllu.

Smá aðstoð væri vel þegin :) (10 álit)

í Harry Potter fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég var að lesa bókina Skugga-Baldur í skólanum og svo áttum við að velja okkur ritgerðarefni tengt bókinni. Kennarinn sýndi okkur hvernig höfundurinn valdi nafnið: Skugga-baldur þýðir afkomandi kattar og tófu, illur andi, myrkramaður, sá sem dylur nafn sitt eða læðupoki. Þá datt mér í hug að Rowling skapar persónur líka svona. Öll nöfnin þýða eitthvað. Ég ákvað að gera ritgerð um þetta, það er best að gera ritgerðir um eitthvað sem maður hefur áhuga á. Ég var einhverntímann búin að skoða...

On An Island (2 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Hérna er smá video um nýju sóló-plötuna hans David Gilmour: http://video.google.com/videoplay?docid=-1835760904235479110&q=David+Gilmour+on+an+island Mér finnst ótrúlega flott þegar er spilað á vínglös og eitthvað sem hljómar eins, get ekki útskýrt hvað það er.

Leti, eða hvað? (12 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Mér líður eins og ég sé að sóa öllum tíma mínum í ekki neitt. Ég er í menntaskóla, fullt að gera að læra, og svo er ég að æfa á þverflautu. Ég er ekki að æfa neinar íþróttir og af því ég þjáist af vöðvabólgu hef ég verið að reyna að fara í sund reglulega síðasta árið. Vandamálið er að síðasta árið hefur mér bara tekist kannski 8 sinnum að fara í sund. Mér finnst mjög gott að fara í sund og ákveð oft að fara í sund en finn þá eitthvað annað mikilvægara, læra heima eða eitthvað. Mér finnst ég...

Stærðfræði (4 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Fyrirgefið að ég set þetta ekki á skólaáhugamálið, það er ekkert svo virkt á þessum tíma árs … Mig vantar sá hljálp í stærðfræði 203, er í 3. kafla í Stærðfræði 3000 - Algebra, föll og mengi (grænu bókinni). Ég er í smá vandræðum með ójöfnur af öðru stigi. Ég á að nota formerkjatöflu. Þetta virkar ágætlega þegar jöfnurnar eru á forminu (x-a)(x+b) - eða eitthvað þannig - eða x(x+a). Maður finnur bara 2 x-gildi sem gefa núll. Svo flækist þetta þegar ég fæ jöfnur með deilingu, t.d....

David Gilmour (4 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég hlusta mjög sjaldan á útvarp en það gerðist í dag að ég kveikti á Bylgjunni og þá var verið að spila lag sem David Gilmour gaf út í dag. Mér fannst þetta fínt lag, ég hef samt lítið hlustað á sólóferil hans. Veit einhver hérna hvaða lag þetta er? Hann gaf út smáskífu í dag en í byrjun mars gefur hann út samnefnda plötu.

Átak (12 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég ætla að byrja á smá átaki hérna á huga. Í staðin fyrir að segja að fólk geri leiðinlega eða tilgangslausa korka ætla ég að hrósa öllum korkum sem ég les sem eru ekki tilgangslausir eða leiðinlegir (og hundsa hina), sama um hvað þeir eru. Það er bara svo miklu skemmtilegra. Mér er sama hvort einhver er með en ég ætla allavega að hvetja fólk til að gera þetta.

Nöfn (7 álit)

í Bækur fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég er að fara að gera ritgerð í skólanum og ég mátti velja efnið (en átti að tengjast bók sem við erum að lesa). Ég ákvað að skrifa um nöfn á sögupersónum, hvernig höfundar skapa persónurnar og hafa nöfn sem þýða eitthvað. Það er hægt að sjá þetta vel í Harry Potter, t.d. að Dumbledore þýðir býflugar (silly nafn á silly persónu) og Narcissia Malfoy (mamma Draco) heitir eftir Narcissos (ég man ekki alveg stafsetninguna) úr grískri goðafræði. Bókin sem ég var að lesa í skólanum er...

Tungan á mér (13 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Í morgun þegar ég ætlaði að fá mér að borða fékk ég svona skrítna, óþægilega tilfinningu á tungunni. Eins og þegar maður er búinn að borða miðjuna úr kiwi (eða er það bara ég sem finn það?). Svo kíkti ég á tunguna á mér og sá að það eru litlar rauðar bólur á henni. Svo er ég að fá hálsbólgu. Er þetta eitthvað óeðlilegt?

Pæling ... (61 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Haldið þið að það sé hægt að verða geðveikur af því að pæla of mikið? Ég fór í sturtu áðan og ég pæli alltaf mikið í sturtu. Ég hélt að ég væri að verða geðveik …

Desktop (8 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég er aðeins að taka til á desktoppinum í tölvunni minni (svo myndin sjáist betur :P) Ég nota hvort sem er eiginlega aldrei neitt sem er á honum. Hvað gerist ef ég hendi þeim iconum sem eru ekki shortcut?

Stytting framhaldsskólanna (18 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég póstaði þessu á forsíðuna en mér datt í hug að setja það hérna líka. Hérna eru nokkrar staðreyndir um afleiðingarnar sem ég fann á síðu Hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskólanemenda - http://hagsmunir.is/ - Skyldueiningum í 3. tungumáli á náttúrufræðibraut verður fækkað um helming - ekki nóg þekking til að nýta sér. - Einingum í raungreinum fækkar töluvert - Þetta minnkar möguleika til að velja nám við hæfi - Deildir eins og eðlisfræði- og máladeildir munu hugsanlega leggjast af sökum...

Tvíburar (38 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég veit að þetta er frekar tilgangslaus korkur en mig langaði bara að spyrja að einu: Eru einhverjir tvíburar hérna á huga? Eineggja eða tvíeggja þá? Vinir eða óvinir? Ég er sjálf tvíeggja tvíburi og við erum bestu vinkonur (vorum ekki alltaf svona góðar …) Bara smá svona forvitni í mér :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok