Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 36 ára kvenmaður
1.508 stig

Re: pointless day.

í Tilveran fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Þannig er þetta alltaf fyrst. Njóttu þess á meðan þú þarft ekki að gera neitt. Minn dagur var bara að mæta á fund og svo búið. Ekkert meira fyrsta daginn :)

Re: Frá hlið - Portrait

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Hún er falleg eins og hún er. Það þarf ekki alltaf að photoshoppa :)

Re: hjálpin er á leiðinni

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Mjög töff. Þokan er góð

Re: Það er eitthvað að gerast með mig!!!

í Tilveran fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Ég get sagt þér að þú færð engin gáfuleg svör eða ráð hér, en ég skil þig mjög vel að vilja tjá þig á nafnlausum stað og það hjálpar örugglega mikið meira en svörin sem þú færð. Passaðu bara að taka ekki til þín það sem er sagt hérna, fólk á það til að vera fífl þegar það getur talað nafnlaust.

Re: svört hettupeysa

í Tilveran fyrir 17 árum, 2 mánuðum
H&M! Vildi að það væri enn á Íslandi … Ég fékk þessa fínu svörtu hettupeysu með engu á, hræódýr og góð. Svo týndist hún :/

Re: Tossi...

í Skóli fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Byrja á því að gera ekkert af því sem þú telur upp að sé ekki gott. Gæti verið sniðugt.

Re: einingakerfið

í Skóli fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Millitalan er alltaf 0 í venjulegum áföngum (stæ103, ísl403 o.s.frv.) stundum 1 eða 2 ef það eru aðeins öðruvísi áfangar (stæ 313, sál 213, nát 123) og þá eru þeir á “sama stað” og áfangi með sömu fyrstu tölu. Svo eru séráfangar með hærri tölur (LÍF 183) og svo eru falláfangar einhvernveginn sem ég skil ekki …

Re: Bækur í lífefnafræði

í Skóli fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Já, var að fatta það ;)

Re: Bækur í lífefnafræði

í Skóli fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Já, mér datt það svosem í hug. En allt í lagi að spyrja, ef einhver væri að skipta um fög og vildi selja ;) Ég veit t.d. að það eru einhverjir sem komast ekki inn í lækninn og taka eitt ár í lífefnafræði áður en þeir reyna aftur, svo ég er pínu bjartsýn á að einhver sé að selja bækur :)

Re: Könnunin, ætti að leggja niður Y og Ý?

í Tungumál fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Ég vil hvorki leggja niður y og ý né að z hefði verið lögð niður. Finnst það bara hluti af málinu, þótt framburður sé orðinn eins og á öðrum bókstöfum.

Re: Fráhvarf

í Tilveran fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Æ, já, ég fæ svona þegar ég fæ ekki tyggjó … Ég er eiginlega alvarlega háð því. En það er bara gott, hefur allavega bara góð áhrif á mína heilsu að vera með tyggjó :)

Re: Jæja, fyrsti skóladagurinn..

í Skóli fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Ég elska fyrstu skóladagana í ME, þar fór maður á fund uppi á sal þar sem skólastjórinn talaði alltaf um það sama. Svo fóru allir í sínar umsjónarstofur og fengu stundatöflur og fleira. Svo voru stuttir tímar þar sem kenanrar gáfu manni 1-2 blöð og svo búið. Fullt af löngum fríum og ekkert að gera, en maður hittir alla vini sína :) Og svo að hanga á vistinni fyrsta daginn milli tíma … aaahhhhh … Ég sakna menntaskóla :/ BTW, ég er að fara að byrja á mánudaginn í HÍ. Hlakka ekki lítið til!

Re: fyrsti skóladagurinn indeed..

í Skóli fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Bara fara til umsjónarkennarans og segja “Fyrirgefðu, en ég er nýr hérna og ég heimta upplýsingar!”. Ok?

Re: Uglu vesen

í Skóli fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Þetta var nú bara á HÍ síðunni. Samt ekkert augljósasti staðurinn. Af hverju er ekki bara hægt að hafa linka á þetta á forsíðunni? Það eru allir að leita að því sama, sem er alltaf falið einhversstaðar á síðum deildanna … Allavega, hér er allt sem við þurfum að vita: http://www.hi.is/is/verkfraedi_og_natturuvisindasvid_deildir/raunvisindadeild/nam/mottaka_nynema

Re: Norska ? :)

í Tungumál fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Kanntu dönsku? Prófaðu að byrja að lesa eitthvað auðvelt á norsku og svo kemur þetta bara. Ég byrjaði að lesa barnabækur (myndabækur) á norsku og sænsku löngu áður en ég byrjaði að læra dönsku í skólanum og gekk bara ágætlega.

Re: Ljósmyndakeppni - Portrait

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Já, er meira að segja búin að senda inn!

Re: svona að pæla ..

í Tilveran fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Þetta fyrsta var gott allavega :) Bætt við 22. ágúst 2008 - 02:09 Fyrstu þrjú meina ég.

Re: Ljósmyndakeppni - Portrait

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Vá, ég tók eftir því að það væri keppni áður en frestur rann út OG ég er á sama tíma með myndavél og tölvu og gat tekið þátt. Þetta er ótrúlegt!

Re: Hvað helduru að sé það óhollasta sem þú hefur látið ofan í þig?

í Heilsa fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Áfengis-sykur-sull. Hlýtur að vera slæmt á allan hátt. Sítrónu breezer er t.d. örugglega ekki mjög hollur.

Re: Hjálp ?

í Heilsa fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Oh, ég veit hvernig er að vera herbergisfélagi þinn :S Mér er alltaf kalt en vinkona mín sem var með mér í herbergi er svona týpa sem er alltaf heitt. Það passar ekki vel saman! :P Veit samt ekket hvað þú getur gert :/

Re: kláði

í Heilsa fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Held að þetta sé fótaóeirð. Veit ekki hvað er hægt að gera í því …

Re: Lok sumars

í Tilveran fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Ég hlakka svo alls ekki til að fá snjóinn og slabbið, en hinsvegar hlakka ég til að byrja í skólanum. Fannst sumarið samt hverfa of hratt. En ég vann eiginlega yfir mig svo ég er ánægð með að það sé búið … Haustið er reyndar æði :)

Re: svona að pæla ..

í Tilveran fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Finndu þér eitthvað í staðin fyrir það sem gerði þig glaða áður. Bara eitthvað. Hvað hefurðu mest áhuga á?

Re: helvítis strætó

í Tilveran fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Æ, ég er líka búin að vera pirruð yfir þessu. Núna er ég bara sár … Það var verið að tala um að leggja niður gjöld í strætó, svo kemur þetta.

Re: Uglu vesen

í Skóli fyrir 17 árum, 2 mánuðum
Já, einmitt. Ég er ekki búin að fá neinar upplýsingar frá háskólanum nema þegar ég hef hringt og heimtað upplýsingar. Ætla að hringja enn einu sinni á morgun. Ég get látið þig vita ef ég kemst að einhverju ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok