Jæja hugarar núna er ég í bullandi fráhvarfi. Öruglega ekki alveg lyfja fráhvarfi en ég er ekki búinn að fá mér kók í eina viku og mér er heitt mér líður ógeðslega illa mig langar í kók meira en allt. En ég er í bindindi út af því að þetta var að fara dáldið úr böndunum (þá er ég að meina svona 3.5 lítrar á dag) og mér bara fannst tími til að hætta allavega í smá stund. Það eina sem ég hef að drekka er einhver Orangina skítur og ég er að klikkast. Kannast einhver við þetta? Ég veit að Birkir H. kannast kannski við þetta, man þegar hann var í kók bindindi.

Hjálp