Hann fæddist í Svíþjóð og bjó þar í 11 ár … Ég fæddist líka í Svíþjóð en bjó bara þar í 1 og hálft ár :( Kann samt slatta í sænsku en þarf að læra dönsku í skólanum :S
Já, gleymmdi að segja að hann fékk bara 10 og 9,5 nema 8,5 í íslensku því hann átti heima í Svíþjóð og er ekki eins góður í því! Sumir eru bara gáfaðari en aðrir …
Ég hefði getað það ef ég hefði ekki gert klaufavillur (las ummál í staði fyrir flatarmál eða eitthvað þannig). Svo er ég alltaf að fá það sama og hann í stærðfræðiprófum núna :)
Þetta er arfgengt, kynháð gen sem veldur bara skalla hjá körlum. Semsagt konur eru líka með þetta en það kemur ekki fram hjá þeim þar sem þær eru ekki með karlhormóna. Ég var að klára erfðafræðikaflann í náttúrufræði :P
16, ohh ég ætlaði að spurja þig hvað þú hefðir fengið í samræmdu ef þú værir búinn með þau :S Ég þekki nefnilega algjöran stærfræðinörd sem fékk 10 á samræmda stærðfræðiprófinu!!
Úfff … Ég fékk ælupest klukkan 5 á nýársnótt og var búin að vera eitthvað skrítin á gamlárskvöld. Ég hlustaði þó allavega á forsetaávarpið af því ég gat ekki staðið upp og slökkt á sjónvarpinu :S Það var ekki sniðugt!
Ég er búin að vera með inngrónar neglur á tánum lengi … frekar óþægilegt En bróðir vinkonu minnar þurfti að fara í einhverjar þvílíkar aðgerðir útaf svona og lifði á parkodin forte í langan tíma! Það hlýtur að vera ömurlegt!
Haha! Þetta er sagt við mig á hverjum degi … og veistu hver segir þetta við mig? Vinur minn sem er alltaf að lana!! :D Hver er sorglegur? Þetta er ekkert slæmt. Það er ágætt að vera nörd :D
Ég átti svona kött einu sinni en kötturinn minn núna er miklu skemmtilegri, kemur alltaf til manns og vill láta klappa sér og þannig. Gallinn er að hún er versta frekja og hræðilega athyglissjúk!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..