Hérna er svarið:

Í skýrslum um dánarorsakir á Íslandi undanfarna fimm áratugi má meðal
annars finna ýmiss konar slys og sjúkdóma. Hins vegar er hvergi getið
um dánarorsökina “leiðindi í dönskutíma.” Í ljósi þess að á hverju ári
sitja þúsundir Íslendinga í dönskutímum mörgum sinnum í viku má því
draga þá ályktun að þessi dánarorsök sé sárasjaldgæf og tíðni hennar
undir marktæknimörkum.

Eftir stendur reyndar sá möguleiki að dánarorsökin “leiðindi í dönskutíma”
sé algeng, en að skólar og heilbrigðisyfirvöld hafi með sér samsæri um að
leyna því. Ef um slíkt er að ræða getur vel verið að bæði nemendur og
kennarar hrynji niður í dönskutímum og dönskukennsla sé stórhættuleg.
Vísindavefurinn lýsir eftir vitnum sem geta gefið vísbendingar um slíkt
samsæri og heitir þeim fullum trúnaði.




Ef við veltum fyrir okkur hvers vegna sumir kennarar eru leiðinlegir
kemur sitthvað til álita. Sé um dönskukennara að ræða getur verið að
hann sé að reyna að losa sig við nemendurna. Hann hefur heyrt af þeim
möguleika að dönskutímar séu lífshættulegir og kannski finnst honum
nemendurnir leiðinlegir og óttast um eigið líf. Leiðindi dönskukennarans
eru því hrein sjálfsbjargarviðleitni: Hann er að reyna að verða fyrri
til að koma nemendunum fyrir kattarnef áður en þeir gera honum slíkt
hið sama.

Ýmislegt annað kemur líka til greina. Kannski er svo leiðinlegt að vera
kennari að aðeins leiðinlegt fólk kærir sig um það starf. Eða þá að
bráðskemmtilegt fólk verður hundleiðinlegt eftir nokkur ár í kennslu.
Samkvæmt heimildum okkar er það að vera leiðinlegur ekki eitt af
inntökuskilyrðum Kennaraháskóla Íslands. Ekki vitum við heldur til þess
að þar sé kennt sérstakt námskeið í leiðinlegri hegðun.

Sum okkar í ritstjórn Vísindavefsins búum yfir þeirri reynslu að hafa
fundist kennarar leiðinlegir þegar við vorum sjálf nemendur en höfum
svo orðið kennarar sjálf. Eftir að við urðum kennarar hætti okkur að
finnast kennararnir leiðinlegir. Vel getur verið að skýringin sé sú
að við séum sjálf orðin svona hrútleiðinleg.

Allir sem hafa verið í skóla þekkja líka þá félagslegu kvöð sem virðist
hvíla á nemendum á ákveðnum aldri að finnast kennarar leiðinlegir, eða í
það minnsta láta eins og þeim finnist það. Eftir því sem við best vitum
hefur það aldrei gerst að nemandi í einum af efri bekkjum grunnskóla á
Íslandi hafi látið þau orð falla innan um félaga sína að allir kennarar
væru skemmtilegir. Eigi slíkt eftir að gerast verður það vafalaust fyrsta
frétt hjá öllum fjölmiðlum landsins.

Hér er rétt að benda á að nemendur hafa ákveðin forréttindi umfram kennara.
Þeir geta pískrað sín á milli um það hvað kennarinn sé vitlaus, asnalegur og
hallærislegur. Þetta vita allir kennarar, enda voru þeir sjálfir einu sinni
nemendur, og má því ætla að kennarastéttin hljóti að vera full af fólki sem
hefur lúmskt gaman af að vera kveikjan að svona umtali. Kennararnir reyna þá
kannski að vera leiðinlegir til að nemendurnir hafi eitthvað til að tala um.

Kennurum leyfist hins vegar ekki að pískra sín á milli um nemendur á þennan
hátt, hversu freistandi sem það kann að vera, þar sem þeim er skylt að bera
hag nemenda fyrir brjósti framar eigin skopskyni. Kennarinn hefur þá skyldu
að reyna að láta sér líka vel við alla nemendur sína, líka þá sem sofa í tímum,
læra aldrei heima og svara kennaranum aldrei nema með eins atkvæðis orðum.

Vísindavefurinn stóð á dögunum fyrir rannsókn á leiðinlegum kennurum og nemendum.
Fylgnin milli leiðinlegra kennara og leiðinlegra nemenda reyndist jákvæð. Þannig
höfðu nemendur með leiðindastuðulinn 77 kennara með leiðindastuðul 82,3 að meðaltali
meðan nemendur með leiðindastuðulinn 43 höfðu kennara með leiðindastuðul 38.
Niðurstaðan er því skýr: Leiðinlegt fas kennara er í beinu samhengi við leiðinlegt
fas nemenda. Ekki er þó ljóst hvoru megin orsökin liggur enda segja hreinar
fylgnikannanir aldrei til um slíkt.

Það má einnig nálgast það hér: Vísí!


Og líka: Getur einhver þýtt þetta fyrir mig?
“du är super duper mega söt skicka detta till alla som är sööta . Även till mig om du tycker att jag är söt. Får du mindre än 3 tillbaka, så skulle du nog behöva bli lite söötare Får du 3 tillbaka är du en kompis får du 6 tillbaka är du SööT Får du över 6 st tillbaka är du jävligt Fin”