Já, ég er komin með ælupest, vaknaði klukkan fimm í nótt til að æla og líka klukkan sirka níu.
Svo á litli bróðir minn afmæli á mánudag en hélt upp á það í dag, mér var bara hent inn í mitt herbergi meðan krakkarnir (brjáluðu) voru í klikkuðum boltaleik fyrir framan hverbergið mitt- og svo má líka nefna það að hans herbergi er hliðiná mínu og píluspjaldið er einmitt hinum megin við vegginn þannig að það heyrist mikið hjá mér þegar þeim dettur í hug að fara að kasta…
Ég er búin að vera slöpp í allan dag og er bara búin að borða tvö kíwí í allan dag, og er að drepast í mjaðmagrindinni- hef ekki hugmynd um af hverju það er.

Geri aðrir betur.