Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 36 ára kvenmaður
1.508 stig

Re: kettlingar? :)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ha? Setja hvað á hvaða link? Ha? Ég á sko ekki kettlinga. Átti einu sinni, fyrir löngu síðan. Nú á ég bara eina læðu sem er á pillunni.

Re: Mitt álit á jólunum

í Hátíðir fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Gleðileg jól! :) Líður þér betur? Ég myndi senda þér pakka ef ég vissi hver þú værir :)

Re: Fréttir Fréttir

í Gullöldin fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Kannski kíki ég á einhverja plötudóma og geri þá upp á nýtt, laga þá til. Ef ég nenni. Ég er í augnablikinu afar upptekin við að vera í jólafríi :)

Re: Pink Floyd

í Gullöldin fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég er svo sammála þér. Division Bell er með uppáhalds plötunum mínum! Mæli með Cluster One, hefur mikið verið í uppáhaldi hjá mér nýlega.

Re: Pink Floyd

í Gullöldin fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Mér finnst Division Bell besta af þessum þrem. Enda fýla ég meira Gilmour en Waters. Hinsvegar finnst mér plötur eins og Atom Heart Mother betri en þessar þar sem þeir vinna allir saman.

Re: Dark Side Of The Moon

í Gullöldin fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Jabb. En Great Gig In The Sky er þá undanskilið. Elska þetta lag út af lífinu og sérstaklega að hafa það á repeat í mp3-spilaranum mínum meðan ég læri. Annars verður maður eiginlega að hlusta á allan diskinn. Bætt við 13. desember 2006 - 04:01 Hinsvegar með The Wall, sem á að vera eins, get ég aldrei hlustað á alla plötuna (eða plöturnar). Mér finnst einfaldlega vanta helminginn þegar myndin er ekki :S

Re: Jethro Tull til Íslands

í Gullöldin fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég mun líklega fara. Hef reyndar ekki náð að kynna mér þá eins vel og ég vildi, en þeir eru góðir! Mig langaði svo á Ian Anderson tónleikana, þar sem ég er þverflautuleikari og hann er ein af fyrirmyndunum, en ég komst ekki :(

Re: mexíkóska i think

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Frábær orðaforði ;) Þú veist hvað vivace þýðir á ítölsku? (vona það, annars vona ég þín vegna að þú sért ekki í tónfræði 7 :P) Vivace, vivre, viva … Allt eitthvað lifa :) Og já, viva þýðir lifi Viva la France!!

Re: mexíkóska i think

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
“Viva” þýðir “Lifi”. T.d. “Viva la France” þýðir “Lifi Frakkland” La er bara greinir. Hef ekki hugmynd um hvað Rasa þýðir. Bætt við 13. desember 2006 - 02:46 Annars á þetta eiginlega heima á /tungumal :)

Re: kettlingar? :)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Pínu. Allavega á huga :)

Re: kettlingar? :)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Awww … Mig langar í :( En ég á kött, litla sæta frekju :) Hún myndi aldrei hleypa öðrum ketti á heimilið. Bætt við 13. desember 2006 - 02:36 Verð eiginlega að segja þér þær sorglegu fréttir að ég efast um að einhver vilji taka við köttunum. Allir annað hvort eiga of marga ketti, vilja þá ekki eða geta ekki tekið við þeim. Það er bara svo mikið af þeim á Íslandi. Veit það af reynslu að það er erfitt að losna við kettlinga (átti læðu sem var alltaf að gjóta, hélt uppi kattastofninum á...

Re: Kindin mín hún Sunna

í Gæludýr fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég átti kýr þegar ég var lítil sem ég heimtaði að fá að kalla “Hárakusu” af því hún var með hár á hausnum (eins og allar kollóttar kýr)

Re: Of hár standard? =S

í Rómantík fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Þú ert heppin að finna það sem þú fýlar. Ég myndi t.d. alls ekki þola eins týpu og er lýst þarna en þess vegna eru einmitt ekki allir eins ;)

Re: Of hár standard? =S

í Rómantík fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Vá … Hef ekki einu sinni pælt í svona hlutum. Allir hafa sína galla, ef maður getur ekki sætt sig við þá er maður hálfviti. Bætt við 13. desember 2006 - 00:23 Þessi listi lýsir líka einhverjum algerum aumingja sem lætur kærustuna stjórna sér alveg og er hræðilega væminn.

Re: Varðandi: Why hélt hann ekki bara kjafti - korkinn hér fyrir neðan.

í Rómantík fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég er sammála með framhjáhaldið. En það er eitt sem ég fór að pæla í: Það er rétt af þeim sem hélt framhjá að segja kærustunni/kærastanum frá því en af hverju var þessi aðili í þræðinum fyrir neðan að segja öllum vinunum frá því?

RE: Klippur og notendaprófíll

í Forsíða (gamla) fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Sammála þeim hérna fyrir ofan - Notendaprófíllinn er ekki alveg að gera sig … Mér finnst þetta svo ruglingslegt svona.

Re: Balin

í Tolkien fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Jamm :)

Re: Jól trúlausra

í Hátíðir fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Alveg sammála. Þetta er bara gömul og rótgróin hefð og tengist varla kristni.

Re: Balin

í Tolkien fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Runiz ?ohizon o?rua?u?uaangbo Er ekki alveg viss á öllum rúnunum en þetta er sirka það sem stendur.

Re: Týpískt af mér!

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég var svona. Skil ekki af hverju ég hætti þessu … Kannski af því ég er farin að búa í litlu herbergi, erfitt að týna hlutum þar :) Ef þeir eru ekki þar eru þeir inni hjá vinum mínum, alveg jafn auðvelt að finna hluti þar :P

Re: Stærðfræði |X+2|

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ohh … nú man ég hvað þetta er … Þetta og prósentur eru einu hlutirnir í stærðfræði sem ég hata! Og ég er búin með STÆ 303!

Re: Stærðfræði |X+2|

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Það eru vigrar. Þetta þýðir lengd vigursins AB, nema það vantar vigramerkið fyrir ofan … Spes :/

Re: Könnunin?

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Og möguleikarnir fyrir þá sem spila ekki á gítar: Spila á trommur eða spila á bassa. Jú, það er annað/hlutlaust … Æh, ég ætla að hætta að nöldra um þetta … Megum við klassísku hljófæraleikararnir ekki bara fá stað á /klassík?

Re: Könnunin

í Tungumál fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Reyndar notuðu menn meira galdrastafi til að galdra en rúnir voru eitthvað notaðar líka. T.d. var týr ristur á vopn til að vinna bardaga. En rúnirnar, eldra fuþarkið, var notað til að spá. Og þær eru eins og stafróf.

Re: Balin

í Tolkien fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ok … Ekki alveg það sem stendur :P Stendur eitthvað “Runiz” og ég man ekki meira :P En það breytir ekki miklu, ekki það margir sem taka eftir því.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok