Mér er mikil ánægja að tilkynna ykkur það að auglýsing frá gullöldinni mun birtast hér vinstra megin á huga dagana 24-26 desember. Er hægt að velja betri daga ? Fólkið skal vera á gullöldinni yfir hátíðarnar.

En þar sem við eigum von á gestum 24. - 26. desember, hvað segiði þá um að hafa svona sæmilega greinaflóð hérna inná síðunni ? Eru ekki allir að fara á límingunum yfir því að fara skrifa nýja grein ? Mér finnst það. Reynið ykkar besta, ekki viljum við gera gestina svekkta.

Einnig megiði senda inn fleiri myndir, það eru engar í bið eins og er.

kv.