ég er í tækniháskóla í Vín þar sem allir nota Linux/KDE og eru mjög sáttir, sama hvort þeir eru að læra arkitektur eða tölvunarfræði. Ég er ekkert ýkja hrifinn af “share this connection” í xp, ég var að reyna klóna netkortið mitt, gefa því tvær ip-tölur og routera á milli neta með einu netkorti í WinXP.. og eftir að hafa reynt í 4 tíma, þá setti ég bara upp linux til að gera það, allt komið upp á innan við 2 tímum, þótt ég hefði aldrei notað Linux nema til að gera start og stopp á þjónustur...