ég veit nú ekki hvort að rithraði aukist um einhver hundruð prósent, en dvorak útsetningin var hönnuð til þess að koma í veg fyrir innsláttarvillur og óþægindi við innslátt. ss. þeir stafir sem mest notaðir eru í ensku tungumáli eru staðsettir á miðju lyklaborði, þeas þar sem þú nærð í þá með vísifingri og löngutöng. ég tel ekki ólíklegt að rithraði batni um amk 30% með dvorak útsetningunni, og að hún komi í veg fyrir óþægindi.