ég er alveg sammála því að 9. sinfónía beethoven sé eitt mesta verk klassískrar sögu. ásamt 1812 overture frá tchaikovsky held ég mest upp á 9. sinfóníuna. það má einnig geta þess að það tók beethoven yfir 200 tilraunir og 10 ár að finna hina fullkomnu melódíu fyrir texta schillers.
ég fann þetta á www.farscape.com: Although SCI FI Channel has chosen not to pick up a fifth season, The Jim Henson Company is in active development on a new Farscape film, an anime project and is currently discussing syndication of this highly acclaimed series. We are eager to move forward with the Farscape creative team in developing new projects that will resonate with our overwhelmingly loyal fan base.
flott. ég er búinn að uppfæra og vona að þetta verði sett í gang fljótlega. hvaða ráðstafanir verða gerðar fyrir fólk sem reynir að tengjast server en veit ekki af þessu?
og þú vilt væntanlega 200þús kr fyrir þetta? ég ráðlegg þér að kíkja frekar á spjallborðið á mac.is þeir virðast vera tilbúnir til að borga morðfjár fyrir úreldan vélbúnað.
þó svo að einhver eigi þetta þegar til þá tekur alltaf tíma að aðlaga kerfið að þeirri mynd sem viðskiptavinurinn vill. segjum að forritarinn sem þú ræður tekur 3000kr á tímann - það tekur hann 17 tíma að vinna fyrir þessum 50þús krónum. og ég get lofað þér því að þetta sem þú ert að leita eftir, tekur meira en 17 tíma.
já loksins er kominn vafri sem er verðugur arftaki ie. þó nota ég ennþá ie einfaldlega vegna þess að hann er fljótari að rendera síður. en þegar firebird verður orðinn jafn snöggur og ie mun ég ekki hika við að skipta.
það gæti líka vel farið svo að þú lendir í bílslysi, eða þú smitast af hættulegum kynsjúkdómi eða verður fyrir eldingu osfrv, og ég fletti yfir minningagrein þína með rettuna í munnvikinu.
það geta allir hætt að reykja, en það eru ekki allir sem vilja hætta að reykja. mér finnst gott að reykja, og tek ég ánægjuna við það fram yfir heilsuna :)
steinia: verðið fyrir viðhald sæstrengsins er ekki nálægt því sem þeir græða á að rukka fyrir utanlands niðurhal. heldur rukka þeir einungis vegna smæðar strengsins, sem myndi ekki ráða við álagið ef niðurhal væri frítt.
Það er ekkert að winamp, og það er ekkert að musicmatch jukebox (í þessu tilfelli). Það sem þú þarft að gera er að henda Windows ME, og fá þér alvöru stýrikerfi, eins og td Win2000 eða XP.
pingið er hræðilegt á loftlínu, en þetta er ein stöðugasta tenging sem þú getur fengið. í þá 9 mánuði sem ég var áskrifandi hjá þeim, bilaði línan aldrei, og datt ekki út í svo mikið sem eina sekúndu, svo stöðug var hún.
vil bæta einu við þetta. ef vinkona ykkar kann á íslenska lyklaborðið, er nóg að stilla þetta í stýrikerfinu, því hún þarf ekkert endilega íslenska stafi á lyklaborðinu sjálfu til að nota þá.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..