Tíska Avrilar Avril Lavigne er 18 ára þokkadís sem mér finnst toppa allt hvað varðar föt. Hún er sjálfstæð og flott og fötin sem hún gengur í myndu ekki fara neinum öðrum vel! Þessi “tíska” hennar eru að mestu pokabuxur, gaddaarmbönd, hlýrabolir og bindi! Ég er mikill aðdáandi (kaupið diskinn!!) og finnst hún bara skera sig úr hvað varðar föt -og náttúrulega tónlist!- því að það er tískan í dag, er það ekki? Hún sker sig svo sannarlega úr fjöldanum og þess vegna er hún flott! Hún er svona “tomboy” eða með öðrum orðum strákastelpa enda gengur hún í svona hjólabrettafötum! Pokabuxur eru að koma mikið inn núna -finnst mér- og sjálf ætla ég að kaupa mér svoleiðis um leið og ég finn þær!