Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

coot
coot Notandi síðan fyrir 21 árum, 1 mánuði 39 ára karlmaður
646 stig

Re: Hvalveiðar hafnar á ný

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Matur? Ég þori að veðja upp milljón skrilljón svissnenska franka að við eigum ekki eftir að svelta þótt við sleppum hvalkjöti. Peningar? Norðmenn og Japanar eru sjálfum sér nægir um hvalkjöt. Svo óheppilega vill til að það er eini markaðurinn fyrir þetta, aðrar þjoðir borða ekki hvali. Þorskstofninn? Fyrir þremur árum fóru af stað vísindaveiðar á hrefnum sem einmitt áttu að ransaka áhrif þessara hvala á fiskistofnana. Enn sem komið er hef ég ekki séð eina einustu niðurstöðu frá þeim...

Re: Hvalveiðar hafnar á ný

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Já, ég er á eiturlyfjum. Það er ekkert marktækt sem ég segi, það er allt í lagi að veiða hvali til að sýna alþjóðasamfélaginu hvað við erum reið

Re: Hvalveiðar hafnar á ný

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Fólk er ekki að fatta að sama þótt tilgangur með veiðunum sé einhver vegur sá tilgangur (ef einhver er) ekki á móti þeim skaða sem veiðarnar gera. Aðrar þjóðir líta á okkur sem fyrirmynd hvað varðar náttúruvernd. Ef okkur er alvara í að reyna að fá aðrar þjóðir til að haga sér sómasamlega í náttúruvernd og mengunarvörnum verðum við að haga okkur með ábyrgum hætti. Einhliða ákvörðun um hvalveiðar er ekki ábyrg hegðun, hún fær aðrar þjóðir til að sniðganga okkur í meira mæli. Minni umfjöllun...

Re: Hvalveiðar hafnar á ný

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Heyr, heyr. Kominn tími til að þjóðin vakni frá þessum afturhaldshætti sem einkennt hefur hana síðasta áratug. Það lítur út fyrir að þetta fár verði svipað og með Kárahnjúka þar sem meirihluti þjóðarinna sá ekki hversu heimskulegt dæmið var í byrjun en eftir að hún hafði melt þetta þá varð stór meirihluti á móti þessu öllusaman.

Re: Hvalveiðar hafnar á ný

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hver er tilgangurin með þessu?

Re: Hvalveiðar hafnar á ný

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hvað er að. Erum við Íslendingar svo reiðir út í alþjóðasamfélagið að við ætlum, ætlum sko… að fara að veiða hvali. Það er svo sannarlega góð ástæða: Veiðum hvali til að sýna hvað við erum reiði

Re: Hvalveiðar hafnar á ný

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Svo við erum að gera þetta til að hefna okkur á Kananum. Ástæðurnar hrannast upp.

Re: Til hamingju Íslendingar...

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég vill ekki banna neinum neitt, vill bara að Ísland sýni gott fordæmi fyrir því hvernig þjóð eigi að haga sér, slíkt gerir maður ekki með því að ganga gegn vilja alþjóðasamfélagsins. Við erum með þessu að gera svipaða hluti og N-Kórea, bara ekki jafn öfgamikið og banvænt.

Re: Til hamingju Íslendingar...

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Afþví að mannveran hefur einfaldlega meiri tilfiningar fyrir sumum dýrum. Svo er líka hrottafengið hvernig þeir eru drepnir, það fær alþjóðasamfélagið til að líta verr á þessar veiðar en aðra

Re: Til hamingju Íslendingar...

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
* það að hafa nóg af hvölum eru ekki rök til að veiða þá. * Sumir vilja líka ræna fólk að atvinnu. Aftur ekki rök til að veiða þá. Við þurfum að halda vissri ímynd. Aðrar þjóðir líta á okkur sem fyrirmynd hvað varðar náttúruvernd, og svo skemmumvið það með því að gera svona óábyrga hluti.

Re: Til hamingju Íslendingar...

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Sömuleiðis eru áhrif hvala á fiskistofnin bara ágiskannir. Ég hef enn ekki séð neinar niðurstöður frá þessum svokölluðu vísindaveiðum.

Re: Til hamingju Íslendingar...

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég er enn að leita að alvöru rökum með hvalveiðum, þegar ég hef heyrt þau get ég tekið afstöðu varðandi þetta. Þangað til fer ég blint á móti

Re: Hvalveiðarnar að hefjast!!

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Og samt er ímynd okkar sködduð. Hvers vegna ætli það sé?

Re: Pyntingar leyfðar á vegum Bandaríkjahers

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Þetta eru pyntingar! Er orðið eitt og sér ekki nóg til að vekja óhug? Það er meðvitað og vísvitandi verið að leggja mann/menn í einelti. Ójjj!!! Jafnvel þó þetta sé notað þröngt, ójjj. Segðu mér eitt. Gæturðu pynt mann og lifað með það á samviskunni? Jafnvel þótt upplýsingarnar sem þú fékst hefðu bjargað nokkrum mannslífum? Þú verður þó að gefa gaum að því að fleiri mannslífum hefði verið bjargað ef engin grundvöllur væri fyrir þessum árásum. Pyntingar grundvalla ótta, reiði, hatur, árásir...

Re: Glæsileg samvinna

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Næsta verkefni hlýtur þá að vera að sýna það í verki að við erum fær um að tryggja ytra öryggi með valdbeitingu og innsigla loks sjálfstæði okkar. Til hvers? Blæða peningum í eitthvern algjöran óþarfa. Ég segi: Herinn er farinn, við höfum nógu öfluga löggu til að tryggja öryggi frá glæpa- og hryðjuverkasamtökum. Ógnir utanfrá eru engar. Þar með vill ég ekki sjá einn einasta hermann eða hermaskínu hérna það sem eftir lifir.

Re: ehhh

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Allt í lagi, við getum haldið áfram að deila um þetta endalaust. Ég gæti komið með rök á móti þessu og þú rök á móti því o.s.frv. En ég ætla að færa aðeins umræðuna til. Öll erum við sammála um að reyna að ná heimsfrið. Í 5000 ár höfum við reynt að ná honum með vopnavæðingu, það hefur hingað til ekki virkað. Er ekki komin tími til að reyna eitthvað annað?

Re: ehhh

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Þú berst ekki við fíkniefnasmyglara með herþyrlum, flugmóðuskipum, sjálfvirkum rifflum og basúkkum, heldur með öflugri löggæslu sem geta þess vegna verið vopnuð óbanvænum vopnum eins og stuðbyssu, táragasi og kylfum. Það þarf ekki að vera að afvopnun stuðli að missi sjálfstæðis, frelsiss eða grundvallamannréttinda. Penselvaníunýlendan var vopnalaus í næstum heila öld og ekki misstu þeir neitt af ofangreindu. Svíþjóð og Sviss sluppu við öll hernaðarátök í báðum heimsstyrjöldunum með því að...

Re: ehhh

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Og hvernig heldurðu að Títetar myndu líta út ef þeir ættu í stöðugum skærum við Kíverjana. Nú hafa þeir stuðning Vesturvelda vegna þess einmitt hversu friðsamir þeir eru. Ef þeir myndu streitast á móti er ég viss um að slíkt yrði gert með skæru- og hryðjuverkahernaði og þá væri aldrei að vita nema BNA og Kína myndu ráðast saman gegn þeim í þeim tilgangi að uppræta hryðjuverk heimsins. Ég þori að staðhæfa að ef Tíbetar væri ekki svona friðsamlegir væru þeir löngu útrýmdir. Og það er ekkert að...

Re: ehhh

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
1. Hvernig ætlarðu að verja líf þitt gegn vopnuðum fauta sem sækir gegn því án þess að beita ofbeldi?Flýja 2. Hvaða máli skiptir hvað var löglegt og hvað ekki í máli Tíbetana, af þeim steðjaði engin ógn og þar með var ekki undir neinum kringumstæðum rétt að skjóta þá. Ef þú sást myndbandið þá voru þeir skotnir eins og dýr. Hvar er réttlætið í því? 3. „Ef svo er, þá er hægt að beita ofbeldi á „óofbeldisfullan hátt.““ sagðirðu eftir að ég fullyrti að Landhelgisgæslan notaði byssurnar á...

Re: ehhh

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
1. Ofbeldi er engin lausn. Það er auðvelt að vernda hagsmuni sína með öðrum hætti en ofbeldi. Valmöguleiki sem herskáir stjórnendur heimsins ættu að kynna sér. Það hefur sýnt sig að ofbeldi leiðir bara af sér meira ofbeldi. T.d. virkaði það mun betur fyrir Íslendinga í þorskastríðunum að beita togvíraklippunum en fallbyssunum. 2. Í stórum dráttum er það ekki markmið hernaðar að „drepa helling af fólki“ en það er þó bein afleiðing og oftar en ekki fara sumir herir eftir þeirri hugmyndafræði...

Re: ehhh

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Þetta er bara bull sem þú varst að segja. Máli mínu til stuðnings er það hreinasta rökvilla að halda því fram að með þessu hafi ég verið að setja öll skip undir sama hatt. Smkv. Wikipediu er þetta skip vopnað með fjórum vélbyssum, a.m.k. 5 eldflaugaskotbúnuðum ásamt annrs konar vígbúnaði, það er notað til að flytja hermenn sem allir eru vopnaðir með sjálfvirkum rifflum, allt í þeim tilgangi að stunda hernað (hernað sem felur í sér að drepa helling af fólki). Ég og aðrir menn eru að vísu að...

Re: ehhh

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Það er verið að mótmæla stríðsrekstri í heiminum almennt. Það að þetta skip sé hérna gerir málstað mótmælandana skýrari. Þeir gætu alveg eins verið að segja: „Sjáðu hvað þessir vitleysingar eru að brúka með peningana sýna. Í þetta eyða þeir í stað þess að eyða í eitthvað uppbyggilegt.“ Frekar kalla ég alla aðra klikk að líta framhjá þeirri staðreynd að þetta skip og öll önnur morðtól í heiminum séu að stuðla að yfir milljón morðum víðsvegar um heimin. Sástu fréttirnar um dagin þegar...

Re: ehhh

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Svona verið að spá í hvað þetta skip er eiginlega að gera þarna í höfuðborginni. Er kaninn svona montinn að hann sé með stærsta tippið af öllum í karlaklúbbnum að hann þarf að sýna öllum það?

Re: Saklausar sálir

í Ljóð fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Takk kærlega

Re: Misskipting tekna, afhverju er það slæmt?

í Deiglan fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Og ég held að tengslin séu þau að laun hæst settu einstaklinga hækki á kostnað launahækkana almenns starfsmans sem og aukinar álagningar á þjónustu sem geri það að verkum að almennar vörur, þjónustur og gjöld verði dýrari en með því fylgi engin kauphækkun hjá hinum almenna launþega. Með öðrum orðum: Það verður dýrara að lifa. Þú heldur að yfirdrátturinn sé til að fjármagna lúxus og munað en ég held að yfirdrátturinn sé til að fjármagna nauðsynjar. Þar verðum við, held ég, einfaldlega að vera...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok