Ég horfði á Jesús kveljast á krossinum
hinum megin við múrinn
stóð ég ásamt lítilli stúlku
kannski átta ára
í rauðum kjól
með tár
benda í átt að
rauðu hjartalöguðu skýi
sem á örskammri stundu
hafði verið rifið
í tvennt
af Guði almáttugum
á meðan allir fögnuðu dauða krists