Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

blekBrodir
blekBrodir Notandi síðan fyrir 17 árum, 7 mánuðum Karlmaður
64 stig
Eru vegir jarðarför?

Eru vegir jarðaför (2 álit)

í Ljóð fyrir 16 árum, 1 mánuði
Eru vegir jarðarför? er náttúran auðlind eða iðnbylting? hvort vegur þyngra… að brúa bilið eða að brúin haldi í bili? er sandfok eða baknag í hnakkadrambi hálendisins? flokkast Kárahnjúkavirkjun undir hagsmunaárekstur, eða hreina og klára aftanákeyrslu? er náttúruperla eða verðlaust glingur? því ef valið stendur aðeins milli sjálfsbjargarviðleitni eða niðurrifsatferlis stíg ég heldur stutt þroskaskref, en að grafa eigin gröf heldur feta ég hárfína hengiflugsbrún millum öræfa og allsnægta,...

Sjálfsbjargarviðleitni (1 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Sjálfsbjargarviðleitni, niðurrifsatferli sjálfið alsjáandi, sonur minn sofandi báran á árunni, árin á bárunni aldamótin liðin og ég svaf í gegn á vökunni skinið af sólinni, skinn fletti af sálinni sauma í sárin en sting mig á nálinni sameinast syrgjandi, sundrast er syngjandi sem svo þær stökur sem sumpartinn heilla mig sundlaugin svelgir mig, sverfir frá stífelsið sandur stundaglass silast seint og um síðir ég snýst um sjálfan sig, set dauða hans á svið hvað varðar mig um þig? hvað varðar...

Hæglát elli.. (3 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Með þrútin augu og visna sjón fálma eftir hönd aldagamals vinar, en gríp í tóm undrast augnablik, en hristi svo höfuð yfir eigin gleymsku sest niður hjá leiði hans og bíð…

Segðu mér Sögu.... (2 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Segðu mér sögu, segðu mér sögu… Segðu mér slitur af sögunnar samhljómi mála mér myndir á minningaþak veittu mér næringu úr stórgrýttum jarðvegi skrifa mér skýrslu með orð bak við bak vís á mig vitneskju vitgrannra manna slít mig úr þéttriðnum vanhæfnisvef ef lygin er ljúffeng, hvað þarf þá að sanna? muldraðu til mín þitt miskunnarstef…

...draumkennt með afbrigðum... (15 álit)

í Hip hop fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Dapurleg dægradvöl í fáfarinni frægðarför mistökin sem lifa, tifa, tala til mín tæpitungulaust þau banka laust á dyr, bjóða lausn í formi þroska losna úr læðingi með semingi og krefjast kosta lækka rosta, flosna úr felustað kostar kynslóð eftir kynslóð sitjandi með spegilbrot og brostna, augnaásjónu… herðakistill vegur þungt ef veður aðeins bábilju staðnað loft slævir stund í tregafulri tjáningu eyðileg er bitur grund, blóðböndin öll storknuðu tryggðartaugar trosnuðu, sorgarklæði þykknuðu...

upprifjun (2 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég man eftir kaotískum partíum fjögurra augna samræðum í raunveruleikajakkafötum með slaufu daglegs lífs Bauð mig fram til fífls, í samfélagsins satírum í eins manns göngu revíum, söng mér rétt til lífs…

Egóbeiskja (12 álit)

í Hip hop fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Að annars manns frumkvæði, skrúfa frá frumflæði með úrelta hugmyndafræði, fleyti kellingar, kengfullur, sulla sæði stóreygursem hvolpur, jafnfrískandi og skólprör reyti af mér skólpsvör og beiska rasistabrandara míg sitjandi, skít standandi, ein-elti fatlaða á valtara með lekanda eftir fjölþreifin bartskera hugsa um pussur og pungsvita í miðjum karlaklefa slutslefa, þefa uppi efa, kyngi stolti, ríð henni samt leggjandi inn pant í sósubrók með brúsk, brotna sjálfsmynd og hey stöffa hana upp...

sunnudagsmorgunn (1 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Undir helgrímu dauðastirðnunar, glotti dauft yfir leikskólaskvaldri…

Synjun á Skynjun! (3 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Veit vart nú hvort byrja skal muldra hljótt mitt koddahjal veröld vor og veröld var villist um stund en tímgast þar var árulaus í árafjöld svaf sem snót með sverð og skjöld kjólföt karls nú klakabönd minnist margs sem máttarvöld Þá vin ber að, þétt faðmlag sefar ofsa, blekar blað brúar vað, kannar haf finnur vin, bergir af í dagrenningu drep á dyr, með dróma og drunga depurðar sálir skortir skynsneyti og, hugarflug til fegurðar! Hvað er að? Er það að? Eðlistrosnun? Draumsblóðbað? ei...

Málæði (1 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Misvitrar upphrópanir, rangsagðar tilvitnanir villufylltar ritgerðir, og illa samdir málshættir geysast fram sameiginlegan samræðugrundvöll máls allt frá frumöskri þar til endar í horni táknmáls líkamstjáning, huglæg þjáning, liggur kyrr í skotgröfum barkakýli myndar orð er fæðast fram með andköfum meginmálið meitlað myndlíkingum,tjáð í bókstöfum móðurmálið máist burt, öskrandi hástöfum tungur tæpast ná að túlka hugsun sem í álögum þó tunguliprir taugaendar endi oft í áflogum misskilin...

karlsegó (3 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Leggðu lók í lítið leg ligg þar lágt og læðstu veg taktu á þó táta sé treg þinn er réttur, ég um eg..

akarn... (1 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Veit vart nú hvort byrja skal muldra hljótt mitt koddahjal veröld vor og veröld var villt um stund en tímgast þar Árulaus í árafjöld svaf sem snót með sverð og skjöld kjólföt karlmanns nú klakabönd reynsla, þroski, hönd í hönd Þá vin ber að, þétt faðmlag sefar ofsa, blekar blað, brýtur af, brúar svað finnur vin, bergir af.. Í dagrenningu drep á dyr, með dróma og drunga depurðar sálir skortir skynsneyti, og hugarflug til fegurðar Hvað er að..? er það að..? eðlistrosnun..? draumsblóðbað..? Ei...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok