Segðu mér sögu, segðu mér sögu…
Segðu mér slitur af sögunnar samhljómi
mála mér myndir á minningaþak
veittu mér næringu úr stórgrýttum jarðvegi
skrifa mér skýrslu með orð bak við bak
vís á mig vitneskju vitgrannra manna
slít mig úr þéttriðnum vanhæfnisvef
ef lygin er ljúffeng, hvað þarf þá að sanna?
muldraðu til mín þitt miskunnarstef…
Eru vegir jarðarför?