Veit vart nú hvort byrja skal
muldra hljótt mitt koddahjal
veröld vor og veröld var
villt um stund en tímgast þar
Árulaus í árafjöld
svaf sem snót með sverð og skjöld
kjólföt karlmanns nú klakabönd
reynsla, þroski, hönd í hönd
Þá vin ber að, þétt faðmlag
sefar ofsa, blekar blað,
brýtur af, brúar svað
finnur vin, bergir af..
Í dagrenningu drep á dyr,
með dróma og drunga depurðar
sálir skortir skynsneyti,
og hugarflug til fegurðar
Hvað er að..? er það að..?
eðlistrosnun..? draumsblóðbað..?
Ei vittryllast og vegvillast
við vegakant vor velvildar
þar stöðnuð straumhvörf, stór í sniðum
sökkva í sef og steingerast
En leiðir liggja í lykkjum, rammflæktar mjög
á andlegum öræfum legg hver sín drög
hvert skref er talið, allt frá fótskör
vitfirrtur lávarður vill loft láð og fláráð lög
Visinn í vosbúð, veð villur vega
brúa brátt bilið, nú borgast nálega
skrumskæli sjálfsímynd, egni til efa
sælist seint sáluhjálp, svartan svan sefa
En veit þó vel að von er val
á vonarvöl í speglasal
vel frjálsvilja, ver vort vað
vitja visku í vonarstað..
Eru vegir jarðarför?