Með þrútin augu og visna sjón
fálma eftir hönd aldagamals vinar, en gríp í tóm
undrast augnablik,
en hristi svo höfuð yfir eigin gleymsku
sest niður hjá leiði hans
og bíð…
Eru vegir jarðarför?