Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

bjornj
bjornj Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
220 stig
kveðja,

The Critics' Choice Awards 2001 (9 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
BFCA er samtök bandarískra kvikmyndagagnrýnenda og í gærkvöldi voru hin árlegu “The Critics' Choice Awards” afhent í Los Angeles. Vinningskvikmyndirnar eru kosnar af öllum kvikmyndagangrýnendum ,sem tilheyra BFCA, og er notast við leynilega atkvæðagreiðslu, sem haldin er í desember, til þess. Það sem kemur mér mest á óvart er hvað Lord of the Rings fær fá verðlaun en ég hef ekki séð hinar myndirnar, þannig að ég get ekki lagt dóm minn á þessi verðlaun. En hér er listinn yfir vinningshafana...

Shrek 2 (3 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Nú munu teiknarar hjá DreamWorks SKG fljótlega setjast niður með blýanta og teikniblokkir og teikna framhald af myndinni Shrek sem ber einfaldlega heitið Shrek 2. Þetta kemur líklegast engum á óvart þar sem Shrek halaði inn tæplega 270 milljónum dollara í tekjur í kvikmyndahúsum í USA. Hún varð þannig önnur tekjuhæsta mynd ársins 2001 og 14. tekjuhæsta mynd allra tíma. Aðeins Harry Potter varð tekjuhærri á síðasta ári. Það verða sömu leikara sem að tala inn á fyrir aðalpersónur myndarinnar...

Stórtap! - algjör niðurlæging (23 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Jæja, þvílík niðurlæging!! Íslendingar skíttöpuðu fyrir Dönum á Parken í kvöld, 6-0. Íslenska liðið sá aldrei til sólar og áttu ekki möguleika á móti sterkum Dönum. Það var varla að Íslendingar kæmu boltanum yfir miðju. Rommedahl skoraði á 13. mínútu af stuttu færi eftir að Árni Gautur Arason hafði varið skalla Dana í stöng, Ebbe Sand skoraði tveimur mínútum síðar með skalla og Thomas Gravesen gerði þriðja markið eftir hálftíma leik eftir slæm varnarmistök hjá Lárus Orra Sigurðssyni....

Kvikmynd um ævi Eminem (28 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Jæja, nú finnst kvikmyndaframleiðendum í Hollywood ævi rapparans Eminem orðin svo merkileg og löng að nú á næstum vikum mun hefjast tökur á kvikmynd sem byggir á ævi hans. Það er Universal sem framleiðir myndina sem enn hefur ekki verið gefið nafn, vinnuheiti hennar er bara The Untitled Detroit Project. Myndin mun aðallega fjalla um samband Eminems og Debbie Mathers móður hans og fyrrum eiginkonu hans Kim. Þ.á.m. réttarhöld Eminem og móður hans þar sem hún fór í skaðabótamál við hann vegna...

Rapparar í kvikmyndum (25 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Ýmsir rapparar hafa reynt fyrir sér með kvikmyndaleik, með misjöfnum árangri þó. Flestir hafa ekki náð neitt sérlega góðum árangri og sumir eiga bara að halda sig við rappið og halda sig eins langt frá kvikmyndaleik eins og hægt er. Hér ætla ég að telja upp þá helstu og það sem þeir hafa gert. Ice Cube: Lék í sinni fyrstu kvikmynd fyrir 10 árum árið 1991, í Boyz N The Hood. Hann hefur leikið í nokkrum ágætum myndum, svo sem Friday myndunum og Three Kings. Næsta mynd hans, sú 19. í röðinni,...

Mike Myers (10 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Mike Myers er fæddur 25. maí 1963 í Scarborough, Ontario fylki í Kanada. Þess má geta að Mike Myers er 171 cm á hæð. Hann byrjaði ungur að leika, aðeins 8 ára að aldri lék hann í sinni fyrstu auglýsingu og lék þar á móti fyrrum SNL stjörnu Gildu Radner. Eftir það kom hann fram í mörgum kanadískum sjónvarpsþáttum. Þegar Mike varð 20 ára byrjaði hann með sinn eigin sjónvarpsþátt sem hét Mullarkey and Myers einnig sem hann vann sem stjórnandi tónlistarþáttar á kanadískri tónlistarsjónvarpsstöð....

Ben Stiller (5 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ben Stiller er fæddur í New York 30. nóvember 1965. Foreldrar hans eru Jerry Stiller og Anne Meara. Þau er bæði leikarar, Jerry er þekktastur fyrir að leika pabba George í Seinfeld. Mamma hans hefur leikið í fjölda kvikmynda sem ég þekki ekki. Ben sýndi strax frá unga aldri áhuga á leiklist og kvikmyndagerð og setti oft upp, ásamt systur sinni, Amy Stiller, leikþætti heima hjá sér. Þegar Ben var 10 ára byrjaði hann að leika sér með upptökuvél og búa til myndir. Áður en Ben byrjaði að leika í...

Blinkende Lygter - dönsk skemmtun (5 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Þessa dagana flæðir yfir okkur myndir frá Hollywood, oft eru þessar Hollywood myndir leiðinlegar og notaðar eru tæknibrellur til að fela léleg handrit og lélegan leik. Það er eins og íslensk kvikmyndahús viti ekki af því að til eru evrópskar myndir sem eru oft frumlegar og betri en Hollywood klisjurnar. Eina bíóið sem er að gera eitthvað í málinum er Háskólabíó og eiga þeir hrós skilið. Í fyrra var sýnd í Háskólabíó danska myndin I Kina spiser de hunde. Þessi mynd kom mikið á óvart og er...

Quentin Tarantino - saga snillings (12 álit)

í Kvikmyndir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hérna ætla ég að skrifa smá grein um snillinginn Quentin Tarantino Quentin Tarantino fæddist í Knoxville, Tennessee í USA 27. mars 1963. Foreldrar hans voru ung, mamma hans aðeins 16 ára en faðir hans 21 árs. Mamma hans heitir Connie og pabbi hans Tony. Quentin er skríður eftir persónu sem Burt Reynolds lék í myndinn Gunsmoke, Quint. Strax frá unga aldri fór mamma Quentins með hann í bíó reglulega t.d. var Quentin 9 ára þegar mamma hans fór með hann á myndina Deliverance. Þessar bíóferðir...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok