Þetta er nú reyndar ekki bara grein um nærbuxurnar hjá ykkur elskunum en ég held hún eigi betur við hér heldur en annarsstaðar.
Ætti að taka það fram að ég er strákur yfir tvítugsaldri.

Ég las um nærföt unglingsstelpa greinina og það rann upp fyrir mér að seinasta skipti sem ég sá virkilega flottan g-streng , brjóstahaldara eða kvennærföt var þegar ég var að versla svoleiðis erlendis.

Er það bara ákveðinn partur af kvenþjóðinni sem á virkilega flott nærföt eða eru einhver lög sem banna stelpum að ganga í flottarí nærfötum en næsta stelpa ? Og ef það er svoleiðis hvernig þekki ég stelpurnar í flotta dótinu? :)

Þetta hlýtur bara vera fyrir ofan minn skilning því þegar ég labba inní flotta nærfataverslun fyrir konur þá fæ ég tilfinninguna að næstum allt þarna hafi verið búið sérstaklega til fyrir stelpur sem ætluðu sér að fá sínu fram með mér.

Þessvegna skil ég ekki hvers vegna ég hef svona rosalega fáum sinnum klætt úr / vitað um eða séð stelpu í brjálað flottum nærfötum.
Ég veit að þetta getur verið rándýrt en sama gildir um flotta kjóla , dragtir og allt það.

Langar endilega að fá að vita hvernig þetta snýr að ykkur stelpunum. Væri gott líka ef þið myndum segja til hvort þið ættuð sjálfar virkilega flott nærföt.

En þá er spurningin á móti kannski - erum við strákarnir kannski enn verri þegar kemur að þessum hlutum ? Göngum við allir í hvítum bómullarplains sem eru álíka spennandi og umræður um hvaða lið er best í fótbolta :)

Ef þið mættuð ráða í hvernig nærbuxum við myndum klæðast fyrir sérstök tilefni ef þið ætluðuð að klæða okkur úr þeim, úr hverju , hvernig snið og hvaða lit mynduð þið vilja hafa á þeim ? Leður og latex kemur ekki til greina held ég hjá öllum strákum!(Nema kannski manson fólkinu?)