Því er ekki að neita að Undirtónum hefur farið mikið aftur síðastliðin ár. Blaðið hefur þynnst, og það sem í því stendur hefur líka þynnst. Einnig finnst mér blaðið illa yfirlesið, reyndar efast ég um að einhver lesi það yfir þegar það fer í prentun, svo mikið er um stafsetningar og prentvillur. Staðreyndavillur eru einnig nokkuð algengar. En verstir þykja mér plötudómarnir. Næstum allar plötur fá of háa einkunn, og gagnrýnendur forða sér undan því að skrifa um plötuna með því að rekja sögu...