> Ég veit alveg muninn á Unix og Linux í stórum dráttum. Nei. Fyrir það fyrsta, eru til óteljandi Unix útgáfur, rétt eins og Linux. Og hvað meinarðu með að Unix sé ekki með GUI. Þú getur vel keyrt X á Solaris og öðrum Unix kerfum, þannig að, jú víst, “Unix er með GUI”(hljómar ekki rétt, er það nokkuð?). T.d. var X til “löngu” áður en Linux kom til. Þú vissir kannski að að strípað Linux lítur 100% eins út og strípuð Unix útgáfa? Þ.e. án X og alles. Ég hef svo sem aldrei heyrt þetta með IRCnet...