Auðvitað áttu að kýla á þetta !! Það er miklu betra að vita hvort hún hafi áhuga eða ekki, heldur en að vera að pæla í því endalaust. Þú segir líka að þið hafið talað saman, þannig að ekki er ósennilegt að hún hafi einhvern áhuga á þér. Þetta snýst einsog einhver hér sagði allt um sjálfstraust. Vertu bara þú sjálfur, og vertu alls ekki með neina stæla, það er rosalegt “turn-off”. Segðu henni bara að þú sért hrifinn af henni - það er svo einfalt !! Gangi þér vel :-)