Halló góðan daginn/gott kvöld.

Ég er með smá vandamál. Þannig er mál með vexti að ég er ný kominn í Frjálsar Íþróttir, og er þar í unglingaflokki og er 14 ára. Fyrst að Keflavík er ekki með frjálsírþóttarlið æfi ég með Breiðablik í Kópavoginum. Og einn dag, þegar ég mætti á æfingu þá var þessi stelpa þarna, ég var bara “vááá” hún er svo falleg! Síðan fór ég að pæla aðeins meira í þessu og sagði við sjálfan mig.. “Þetta getur ekki gengið maður! Hvað ertu að hugsa? Hún er frá Kópavogi og þú Keflavík! Þar að auki æfið þið Frjálsar Íþróttir saman! <b>Einnig er hún einu ári yngri en þú!</b>”

Eftir að ég sagði þetta við sjálfan mig fór ég ekkert að pæla meira í henni. Síðan skeði svolítið, að ég fór á mót á Ísafirði, Landsmót UMFÍ og hún fór auðvitað með. Mér var búið að ganga vel í spretthlaupinu og hún var oft að horfa á mig hlaupa. Síðan var ég að horfa á hana í hlaupi ( hún er ekki mikið æfð hún er eiginlega líka nýbyrjuð ) og “aftanverði hné vöðvin” á henni gaf sig og hún missti næstum jafnvægið. Ég sagði við sjálfan mig, æji greyið! Og labbaði síðan hringin í kringum völlin til þess að leita af henni. Sá ég svo að hún sat með fólk í kringum sig og var að gráta! Mig langaði svo að hlaupa að henni og knúsa hana mjög lengi!

Síðan kom aftur þessi settning í hugan minn að FALLA EKKI fyrir henni! En þetta virkaði mjög erfitt! Því að ég var byrjaður að tala mikið við hana á þessu móti og á æfingum!

Ekki nóg með það, þá kom annað frjáls íþróttarmót á Egilsstöðum og var ég svo heppinn að ég átti frænda á Neskaupsstað sem leyfði mér að gista og ég gerði það nú auðvitað! En þjálfarinn minn talaði við mig og sagði mér að koma að gista á Egilsstöðum með einhverjum 5-7 stelpum í herbergi ;) Ég sagði nú bara auðvitað! En án þess að hugsa eitthvað mikið um þetta þá vissi ég ekki að þessi stelpa sem ég var búin að vera að hugsa svo mikið um var þarna! Ég sagði bara ósjitt! Gisti þarna 2 nætur með þeim og var búin að fara með þeim á diskó og út að borða og allt! Þá gerðist það sem ég vildi ekki, ég féll fyrir henni. Hún var svo skemmtileg og fyndin og talaði svo mikið við mig!

Núna er ég hér að skrifa þetta, deyja úr ást en veit ekkert hvað ég á að gera.

Hún er einu ári yngri en ég, sem sagt 13 ára og ég er 14 ára. Þetta er ekki þannig ást þar sem ég vill bara stunda kynlíf með henni og hætta síðan með henni! Þetta er alvöru, mig langar að halda utan um hana alltaf. Samt var ég alltaf búin að hugsa um að EF Hún skyldi neita mér! Þá mundi ég ekkert þora að fara aftur á æfingu :/ Sem sagt, ferillinn minn í frjálsum mundi enda!

Núna spyr ég ykkur, á ég að taka sénsinn og kýla bara á þetta ? Og taka sénsinn á að eyðinleggja minn feril ? Eða á ég að láta þetta eiga sig. Því ég er alveg að drepast úr ást :( Kannski mundi ég nú ekkert hætta í frjálsum, tæki mig bara smá tíma á að jafna mig.

Hvað á ég að gera?

kveðja, Björgvin Magnússon.
Kveðja, Nolthaz.