Það kostar ekki að nota Messenger sem slíkan, en öll skilaboð fara hinsvegar í gegnum netþjón Microsoft, sem er jú sennilega í USA, og því er reiknast öll notkun á Messenger sem erlent niðurhal. Ég get hinsvegar huggað þig með því að þetta er mjög lítið, ef þú ert einungis að skrifa skilaboð. Sértu hinsvegar að skiptast á heilu kvikmyndunum í gegnum Messengerinn gæti pabbi gamli orðið frekar fúll með reikninginn.