Nei, þú getur alveg örugglega ekki fengið textann aftur. Þú ættir aldrei að skrifa texta beint inn á vefsíður, það er að segja ef það tekur ekki bara mínútu eða eitthvað, heldur að semja textann fyrst í Word og síðan að afrita hann inn á síðuna, sérstaklega þegar um langan texta er að ræða sem þú vilt alls ekki tapa. Málið er það nefnilega að þegar þú ert ákveðin tíma óvirk á einhverri síðu, t.d. folk.is, þá ertu sjálfkrafa útskráð af síðunni. Það er þess vegna sem þetta gerðist.