Í fyrsta lagi spila íslenskir kylfingar ekki eftir USGA, sem er bandaríska forgjafarkerfið, heldur eftir forgjafarkerfi sem er notað í Evrópu. Það skiptir engu máli í hvernig móti þú ert að taka, þátt. Það er að segja hvort mótið sé beinn höggleikur eða punktakeppni, forgjöfin þín er ALLTAF reiknuð út frá punktum. Staðan þín í mótinu fer hinsvegar eftir keppnisreglum viðkomandi móts.