Grafarholtið hefur alltaf verið minn uppáhaldsvöllur og það mun aldrei breytast. Hvaleyrin er næst í röðinni og þessir tveir vellir finnst mér skera sig úr. Ég hef að vísu aldrei spilað í Eyjum, sem er mikil synd, því völlurinn þar er víst stórkostlegur. Það sem kom mér hins vegar mjög skemmtilega á óvart var það hvað minn heimavöllur, GKG, var góður. Ég hefði ekki trúað því að nýji hlutinn yrði eins góður og raun varð á í sumar.