Jamm, eftir mikla leit tel ég mig hafa fundið besta kerfi leiksins!!!

Kannski ofsögum sagt, en það er búið að virka mjög vel hjá mér (er samt ekki búinn að nota það mjög lengi).

Jæja, það byggist sem sé upp á:

GK
DC, DC, DC
DML, DMR (sækja aftur um einn)
MC
AML, AML (sækja aftur um einn)
SC, SC

Það sér hver heilvita maður að mikið mæðir á MC og legg ég því mesta áherslu á að fjárfesta í MC. Svo er ég með besta mann deildarinnar (er með Doncaster á öðru tímabili í D3) í AMR og hann er bókstaflega að brillera. Hins vegar eru hinir þrír DC ekki með neinar svaka tölur en mér virðist sem að þær séu á uppleið þannig að þetta er bókstaflega allt að smella saman.

Þetta kerfi virkar í það minnsta þangað til að góðu AMC vilja fara að koma til mín (þ.e. Harbuzi og Kallström) en kannske breyti ég þá um kerfi