Vitsugurnar voru nú ekki notaðar til þess að drepa fanga, heldur sugu þær sálina úr líkamanum og eftir varð tómur líkaminn (refsing sem á að vera verri en dauði). Annars beita Drápararnir, ásamt Voldemort, drápsbölvuninni (sem er ófyrirgefanleg bölvun) miskunnarlaust gegn óvinum sínum. „Góðu kallarnir" eins og þú nefnir þá, beita ekki ófyrirgefanlegu bölvuninni, því hægt er að fangelsa þá fyrir slíkt. Reyndar fengu Skyggnarnir leyfi til að beita ófyrirgefanlegu bölvununum í fyrra stríðinu...