Jújú, Háskólanetið er eingöngu tengt í gegnum Cantat-3, sjá http://www.rhi.hi.is/. En ég er alveg sammála þér, það gengur ekki að vera án aukatengingar, ef aðaltengingin bilar, þó svo að hraðinn verði margfalt hægari. Það er því bara vonandi að hægt sé að koma sambandi á sæstrenginn sem allra fyrst, því ekki unir maður þessu ástandi lengi. Þó ég geri ekki ráð fyrir að vera mikið á netinu yfir jólin, þá munar samt miklu að geta kíkt á helstu síður og verið með í umræðunni.