Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

aina
aina Notandi frá fornöld 14 stig

Re: Er hann orðinn villiköttur?

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
mitt álit er að það þurfi að gelda hann. mín kisa róaðist ekkert smá eftir að hún var tekin úr sambandi. ekki senda greyið til himna, láttu alla vega reyna á geldinguna gangi þér vel.

Re: Kettlingar á ruslahaugum

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Veistu, þú skalt bara vera glöð yfir því að litlu greyin fengu þó að fara úr þessum heim við allan þann kærleika og hlýju sem þið og læðan ykkar sýnduð þeim. Það voru þó betri örlög heldur en að deyja í þessum andstyggðar poka. Ég myndi virkilega bara vera þakklát fyrir að hafa gert þeim síðustu klukkutímana bærilegri.

Re: Kettlingar á ruslahaugum

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Veistu, þú skalt bara vera glöð yfir því að litlu greyin fengu þó að fara úr þessum heim við allan þann kærleika og hlýju sem þið og læðan ykkar sýnduð þeim. Það voru þó betri örlög heldur en að deyja í þessum andstyggðar poka. Ég myndi virkilega bara vera þakklát fyrir að hafa gert þeim síðustu klukkutímana bærilegri.

Re: Hjálp, Magni minn er enn týndur!!!!

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég hef heyrt um kisu sem komu heim eftirn3 mánuði og svo átti mamma vinkonu minnar kött sem kom heim eftir mörg ár! Sá hafði verið tekinn inn í hús af einhverri konu í sömu götu og var ekki hleypt út. Mörgum árum seinna komst hann út og auðvitað beint heim til sín og er þar enn. Svo voru það nú Moli og Dísa sem týndust um daginn, bæði út fyrir Rvk, en þau eru bæði fundin. Ekki missa vonina. Hringdu í þetta vídeo og í lögguna, eitt skref í einu, ég er með augun opin í mínum göngutúrum um Víkurherfið.

Re: hestur til sölu

í Hestar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Hvenær gætirðu prófað hann. Maðurinn minn myndi sýna hann og hann er laus á kvöldin og um helgar. Þyrftum bara að vita hvenær væri hentugur tími fyrir þig.

Re: hestur til sölu

í Hestar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ekkert mál! aina

Re: hestur til sölu

í Hestar fyrir 22 árum, 10 mánuðum
veistu það að ég veit það ekki. fékk hann í afmælisgjöf en ég er algjörlega óreynd hestamanneskja og þetta er ekki hestur fyrir byrjendur. mér var sagt að vant fólk myndi ná tökum á honum og hafa gaman af að temja hann. var taminn í 3 mánuði en þarf meiri tíma. var ekki tilbúin að eyða meiri peningum í tamningu fyrst hann er ekki fyrir byrjendur. hann er á heimsenda hesthúsinu og þú getur fengið að skoða hann og prófa hann ef þú hefur áhuga. hann er mjög fallegur, ég veit það þó!!...

Re: Kettlingarnir hennar CatLady

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Ég fann það!

Re: Kettlingarnir hennar CatLady

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
ég skil ekki alveg hvar er kisualbúmið hennar?

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
je

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Sorry, hvað veist þú um hvort ég borða dýr? Hefurðu ekkei heyrt um grænmetisætur?

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Já, getum við ekki gert eitthvað í þessu?

Re: 50 kettir gefins!

í Kettir fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Mér finnst þetta hræðileg hugsun. Allir þessir yndislegur litlu kettlingar sem ekkert báðu um að koma í heiminn og fá svo ekki einu sinni að lifa allir. Mér finnst bara, basil að þú ættir að skrifa grein í Velvakanda í Mogganum (getur bara hringt) og benda fólki á þetta. Það liggur við að maður vilji stofna sjóð fyrir fólk sem ekki tímir að láta gelda kisurnar sínar eða lóga þeim. Veistu það að ég trúi því varla að fólk GETI skotið litla kettlinga. Er þetta virkilega satt? Hvílíkt ógeð....

Re: Svarti kötturinn

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ég segi það sama og þú. Margir svartir kettir hafa hlaupið fyrir mig. Og…. ég geri í því að labba undir stiga sem standa upp við hús….það er sagt að það boði ógæfu…. og marga spegla hef ég brotið….auðvitað eru þetta bara kerlingabækur….eitthvað sem á að hræða mann og setja mann úr skorðum. Ef ég kæmi því nú í kring að segja að ef þú stæðir í biðröð fyrir konu með rauðan hatt, myndi eitthvað agalegt gerast hjá þér….og þetta færi af stað….eftir svona 10 ár yrði þetta orðið nýtt...

Re: Mitt fyrsta got !!!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Til hamingju. Flott að vita að allt gekk vel og ég bara hálföfunda þig!! Hef einu sinni séð got og mér fannst það magnað!! Ég er alveg viss um að ef ég ætti læðu sem eignaðist kettlinga færi ég í gegnum sama ferli og þú!

Re: Mitt fyrsta got !!!

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Það kom strax í hugann á mér lagið þarna: Þitt fyrstas bros,þín fyrstu spor osvfrv. þarna má bæti inn í “þitt fyrsta got”! Til hamingju bara!! Þetta er spennandi! Láttu okkur vita þegar allt er yfirstaðið. Hvítur köttur hlýtur að þýða eitthvað bjart og gott????

Re: Ég er að leita mér af Hesti/Hryssu til kaups

í Hestar fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hæ, ég á hest sem er, 7 vetra, undan frægum hesti frá Egilsstöðum. Hann er hvítur - eða gráhvítur. Þarf að selja hann því ég er alveg óvön, en hann er fyrir vant fólk. Ég hef verið að hugsa um að leita að skiptum, en allt kemur til greina. Ég held að 150 þús sé sanngjarnt verð. Datt bara í hug að senda þér þessar upplýsingar.

Re: Ís

í Matargerð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hér er uppskrift að Daím ís. hann er rosalega góður. 4 egg, 4 msk. sykur þeytt saman þangað til það er ljóst og létt. Þeytir 1 pela af róma og hrærir honum og söxuðu Daím( 4 stk)saman við eggjablönduna mjög varlega með sleif. Setur í form, frystir og borðar svo upp til agna!! Verði þér að góðu!

Re: Antikpíanó!

í Heimilið fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvað kostar það og virkar það?

Re: Hvað á Pizzan að heita? -samkeppni

í Matargerð fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Nokkrar tillögur: Besta pizzan, Heimspizzan, Primópizza, Gulgræna pizzan (gular baunir, græn paprika!) Eftirlæti Zabo, Ráðagóð…. þetta er nú eitthvða, á ég að koma með fleiri? Sígóða pizzan, Pizza hússins, Pizzu pizzan, nú er ég að þreytast! Gangi þér vel og láttu okkur vita hvar við getum smakkað þessa lúsxus pizzu. Ha! Lúxus pizzan!!

Re: hvaða myndasögu hetjar er flottust eða í uppáhaldi

í Myndasögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
POWERMARK! Finnst bara verst að blöðin eru hætt að koma út í bili.

Re: Er kötturinn minn geðveikur eða er þetta normalt?

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
já, ég held að hún/hann þurfi hjálp - mér finnst svo leiðinlegt hennar/hans vegna að þurfa að láta svona - hlýtur að líða eitthvað illa innan í sér - kannski þarf hún/hann einhvern góðan, siðmenntaðan vin!!!

Re: Jarðarför

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
sammála zeldagirl. það er líka bara gott að láta brenna líkin.

Re: Er kötturinn minn geðveikur eða er þetta normalt?

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Hvers konar málfar er þetta hjá þér. Kenndu mamma þín og pabbi þér að tala svona andstyggilega. Þett er ekki fyndið og ég held alltaf að fólk sem talar svona ógeðslega sé að leita sér að athygli. Það langar engan til að vera með svona fólki - til lengdar - reyndu nú að vera svolítið næs - það virkar miklu betu

Re: Er kötturinn minn geðveikur eða er þetta normalt?

í Kettir fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Ertu búin að láta gelda hann. Róast þeir ekki oft við það? Ég hef heyrt aðv veit um kisur sem róuðust eftir að þær voru teknar úr sambandi. Annars veit ég lítið um þetta. hef bara átt eina kisu, hún var sú besta í heiminum (fyrir mig!) Hún var dálítið óróleg þegar hún var orðin 6 mán. komin á breimatímabilið en varð svo afar róleg og blíð eftir að hún var tekin úr sambandi. Nartaði bara í litla krakka sem voru að hnoðast með hana eða ógna henni.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok