Ég myndi í þínum sporum hringja í dýraverndunarfélagið. Ég gæti varla sofið ef ég vissi af svona í mínu nágrenni. Þvílíkt! Ef eitthvað gerir mann reiðan þá er það svona. Dýrgreyin sem enga björg sér geta veitt því fólkið er því sterkara. Oj!
Láttu ekki deigann síga og ekki láta “sumar” setja þig úr skorðum. Við erum hér til að hjálpa hvort öðru, það er málið, við höldum því bara áfram og hinir sem vilja vera öðruvísi verða bara öðruvísi. Haltu bara áfram að leita, hringja í Kattholt, fara heim til hennar. Ég var að keyra framhjá kirkjugarðinum í Grafarvogi…það voru fleiri, fleiri kisur þar!! Veit ekki hvort þú býrð þar nálægt en það væri þess virði að athuga hvort þessi kisa sé ein af þeim.
rosalega haldið þið að þið séuð sniðug. reyniði að setja ykkur í spor fólksins sem þykir vænt um dýrin sín. eða dýrin sem skilja ekki af hverju þau eru ekki heima hjá sér. Þykir ykkur kannski ekki vænt um neitt? ég er að reyna að umbera þessa aulafyndni.
við pössuðum einu sinni kisu og hún komst út. Við leituðum og leituðum og fundum hana ekki fyrr en við fórum loksins að húsinu þar sem hún átti heima. Þar var hún! Hafði komist inn í bílskúrinn. En, það hafði tekið hana nokkra daga að finna leiðina. Þeir reyna auðvitað að komast heim til sín. Reyndar átti hún heima í sama hverfi og við. En þessi…?
Ja, ég veit um eina kisu sem datt niður af svölumm en hún vankaðist bara. Geturðu ekki keypt einhverja kisuól á hana, þú veist, þessar sem eru bundnar undir magann, þannig að hún hengist ekki, ef hún dytti. Mætti náttúrlega ekki vera með band um hálsinn. Æ, það væri nú leiðinlegt að veita henni ekki þessa gleði og svo er líka gott fyrrir kisur viðra sig aðeins úti. kveðja, aina
ég hef heyrt, bæði í blöðum og sjónvarpi að krakkar sem alast upp í sveit fá miklu sjaldnar ofnæmi heldur en borgarbörnin sem alast ekki upp með dýrum. Meikar sens, ekki satt?
Maður sparkar ekki í ketti!! það er hræðilega ljott. myndirðu sparka í krakka sem réðist á þig? Kannski var þetta ekki villiköttur heldur svangur köttur!
okkar kisa gerði þetta líka, þangað til við keyptum svona bast þvottakörfu. Þá fór hún að klóra hana. Hún vildi aldrei svona típískt klórustatíf. Við þurftum bara að endurnýja körfurnar svona á 2ja ára fresti þegar við vorum búin að snúa henni á alla vegu! Eðli kisanna er að skerpa klærnar svo þær klóra fína dótið okkar nema að við gerum eitthvað svona.
Rétt áætlað! Og hún virðist vera að síga meira út í kantinn, elsku stelpan. Ég hef ekkert á móti blessaðri konunni, ég bara teysti henni ekki í landsmálin. Hún er of æst og grefur undan fólki sem ég þoli ekki! Að reyna að koma sér áfram með því að tala illa um náungann er bara eitthvað sem nær ekki til mín, heldur fælir mig í burtu frá svoleiðis fólki
Já, það færist aksjón í málin þegar líður að því að ganga á hólminn nk. laugardag. Ingibjörg Sólrún - Reykjavíkurborg - jamm, hvað með allt sem versnaði á þessum tíma fyrir barnafólk Það er ekki farandi lengur í húsdýragarðinn með börnin, það kostar allt inn í honum núna, það var ekki áður. Þetta var svona það eina sem hægt var að gera fyrir stórar fjsk. sem þurfa að passa peninginn. Það eru oft litlu hlutirnir sem skipta okkur almennu þegnana máli. Ég veit bara að okkar fjsk. líður betur...
Heyr, heyr!! Það kom í huga mér í morgun að sá hluti þjóðarinnar sem vill breytingar sé eins og krakki sem er óánægður heima fyrir, vill breytingar og hótar að fara að heiman eftir nokkra daga ef svo verður ekki. En.. þegar á hólminn er komið, þá þorir hann auðvitað ekki að fara neitt. Öryggið er þrátt fyrir heima, hann veit ekkert hvað biði hans þarna úti….
alveg sama hvernig hún er, bara að það sé kona? hvaða endemis vitleysa er í gangi!! Karlar hafa nú stýrt landinu ágætlega og margar konur hafa líka lagt gott til, en það er af því að fólkið hefur eitthvað til að bera sem það er kosið, ekki bara af því að það er kona eða karl. Hættum þessari endemis hringavitleysu. Mín skoðun, ef einvher vill vita hana, að af þeim þrem sem koma til greina, Davíð, Halldór, Ingibjórg. Halldór, hann hefur allt til að bera. Og ef hann væri kona sem héti Halldóra,...
Hún er áreiðanlega ekki vond manneskja, en það e mjög alvarlegt að svíkja heila þjóð um að vera borgarstjóri þeirra í 4 ár en svíkja það nokkrum dögum síðar til að komast að sem forsætisráðherra! Ég veit ekki um neitt slíkt dæmi. Ég meina, gæti hún ekki bara hætt við næsta embætti ef svo bæri við?
Alexandría, Batseba, Kleópatra, Naftalí,Pandóra, Sylvía, Natasja Ebony, Latísja, Amber, Ófelía, Rapúnsel, Zara, Þetta eru allt flott nöfn. Gangi ykkur vel! aina. Gaman væri að vita hvað þið nefnduð hana svo.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..