“Hiphop ain´t got no color, this ain´t no black game”-Kool Herc. Mér finnst asnalegt þegar verið er að segja að hvítt fólk megi ekki hlusta á hiphop, af hverju ekki? Hvað með það þótt að hiphop sé upprunið frá svertingjum, sjálfur Kool Herc sagði að allir kynstofnar mættu hlusta á hiphop. Þetta með BET finnst mér ekki vera rasismi. Þetta er aðeins að sjá til þess að blökkumenn geti komið sínu á framfæri, það er ekkert að því. Hins vegar mætti alveg breyta nafninu.