Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Zaluki
Zaluki Notandi frá fornöld 45 ára kvenmaður
1.488 stig
———————————————–

Tony Adams að hætta (20 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Tony Adams sagði á fréttamannafundi eftir leikinn við Leeds að hann ætlaði að leggja skóna á hilluna eftir næstu leiktíð. Hann hefur spilað 650 leiki fyrir Arsenal og skorað 47 mörk, þannig að eftir næstu leiktíð gæti hann verið búinn að spila eitthvað í kringum 670-690 leiki ef að hann er ekki mikið frá vegna meiðsla. En aftur á móti hefur hann margoft sagt að hann ætli ekki að hætta fyrr en hann hefur jafnað og bætt leikjamet David O'Leary, sem spilaði 722 leiki fyrir Arsenal, en skoraði...

Hræðileg ferð til dýralæknisins (13 álit)

í Hundar fyrir 23 árum
Ég fór með tíkina mína til dýralæknis á miðvikudaginn í sprautu, ormahreinsun og að láta klippa á henni klærnar (þori ekki að klippa þær sjálf því þær eru svartar) Ég fór með hana upp í Garðabæ, og hún var orðin svaka spennt í bílnum. Þegar við komum inn þá byrjaði hún að gelta eins og vitleysingur, og allir horfðu á mig eins og ég væri með brjálað naut í bandi. Ég auðvitað reyndi eins og ég gat að þagga niður í henni, en gekk lítið, það sem að ég var með 2 börn með mér og allt fór í flækju....

Föndur og svoleiðis =) (7 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum
Ég var að spá í hvort að einhver hérna væri með einhverjar sniðugar hugmyndir að föndri og afþreyingu fyrir börnin okkar. Ég kann að búa til leir, en svo bara er ég algerlega hugmyndasnauð :/ En ef að einhver hér veit um eitthvað sniðugt sem hægt er að gera þá má sá hinn sami deila því með okkur :) Við getum alltaf notað góðar hugmyndir. En það skemmtilegasta sem dóttir mín (3 ára) gerir er að fá að fara í baðkarið í pollagallanum og sulla í 4 skyrdollum … með skyrinu í .. Ég veit að þetta...

Endalaus heilabrot (11 álit)

í Heimspeki fyrir 23 árum
Hefur það aldrei komið fyrir ykkur að geta ekki sofnað afþví að þið eruð að hugsa svo mikið ? Þetta kemur oft fyrir mig, ég er að reyna svo innilega mikið að hugsa um ekki neitt. Þegar að þannig á stendur ákveð ég að hugsa um .. já asnalegt en satt .. græna baun, en því miður eftir 5 mínútur er ég farin að spá í einhverju allt öðru og þarf að minna mig á að hugsa um þessa fjandans baun. Ég á mín uppáhalds umhugsunarefni sem ég get spáð eindalaust mikið í, td. hvað er heimurinn stór, er hann...

Hengingarólar, ekki sniðugar (14 álit)

í Hundar fyrir 23 árum
Ég var úti að labba með hundinn áðan og mætti þá konu sem var að viðra hundinn sinn, allt í lagi með það auðvitað. En það sem stakk mig svo hrikalega var það að sjá að hundurinn togaði og togaði í ólina. Þetta var stór labrador og þeir eru nú býsna sterkir, hundurinn var með hengingaról og hreinlega stóð á öndinni, en auðvitað hætti hann ekki að toga :) Mér hefur verið sagt af dýralækni að hengingar ólar geti skaðað hunda, meitt þá hrikalega í hálsinum, en aftur á móti eru margir ráðþrota...

Gelt .. (10 álit)

í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Eruð þið með einhver góð ráð í sambandi við að láta hunda hætta að gelta í tíma og ótíma. Tíkin mín er búin að vera alveg ótrúlega leiðinleg undanfarið, geltir á gesti sem koma í heimsókn og verður kolvitlaus ef að einhver labbar úti á göngustígnum sem er hérna fyrir neðan húsið mitt. Hún geltir líka á alla þegar að við erum úti að labba. Mér finnst þetta ferlega leiðinlegt því að það eru svo margir hræddir við hunda og þetta fer líka bara í taugarnar á mér að vera með svona sígjammandi...

Punktar til tilvonandi hundaeiganda (2 álit)

í Hundar fyrir 23 árum, 1 mánuði
Hér eru nokkrir punktar og ábendingar fyrir þá sem eru að hugsa um að fá sér hund. Hefur þú tíma til að eiga hund ? Hundar þurfa mikla ástúð og athygli, ert þú í aðstöðu til að vera heima hjá hundinum þínum? Þeir eiga flestir erfitt með að vera heima einir meira en nokkra klukkutíma á dag og það er varla réttlætanlegt að vera að fá sér hund ef að þú getur ekki verið heima með honum eða séð til þess að hann sé ekki einn heima á daginn. Kostnaður, hefur þú efni á hundi? Það kostar þónokkurn...

Hlandmaurinn er hlandmaur no more (1 álit)

í Hundar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Takk dúllur fyrir öll ráðin í sambandið við pisseríið á tíkinni minni, þetta er að hafast allt saman, koma auðvitað slys ennþá .. en það er í fínu lagi. Maður býst við svona þegar að maður á hvolp/hund. En ég er allavega fegin að þetta sé næstum komið í lag, þið eruð æði! btw þá var stelpan mín ekki með ofnæmi fyrir hundinum eftir allt, heldur með einhverja sýkingu, þannig að ég þarf ekki að gefa hana (tíkina) :D *knúsogþakkir* Zallý

Biðin endalausa .. (14 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Urg! Ég er núna gengin með 36 vikur tæpar og ég er að deyja úr óþolinmæði, það er ótrúlegt hvað vikurnar eru lengi að bíða núna .. Ég er búin að þvo fötin fyrir ungann (tvisvar meira að segja OG strauja) og ég er búin að finna til allt sem þarf fyrir ungabarn. Hvað get ég gert til að láta mér hætta að leiðast svona biðin ? PLZ ekki segja .. “reyndu að hugsa ekki um það” hehehe, líkamsástandið og pisseríið og spörkin koma huganum að þessu um leið! Í von um einhver ráð … Zallý =)

Vill einhver taka að sér engilinn minn? (3 álit)

í Hundar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Er einhver alger hundavinur hérna sem hefur áhuga á því að taka að sér hvolpinn minn? Eins hrikalega erfitt og það er að láta hana fara þá held ég að ég neyðist til þess :( Stelpan mín er með ofnæmi fyrir henni. Þetta er fimm mánaða border collie/sjéffer blanda, voðalega góð og hress. Þarf reyndar rosalega mikla athygli vegna þess að hún var tekin frá mömmu sinni 3 vikna gömul. Þannig að ef einhver þarna úti vill fá góðann félaga í lífið má sá/sú láta mig vita :)´Náttúrulega óþarfi að taka...

Nýr bróðir (10 álit)

í Börnin okkar fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Halló sérfræðingarnir mínir =) Ég er með smá áhyggjur af 3 ára dóttir minni. Þannig liggur í málinu að ég er að fara að eignast barn í mars, og ég er dauðhrædd um að hún eigi eftir að taka því eitthvað illa. Hún er nefnilega mjög eigingjörn á mig :( T.d. þarf ég að svæfa hana í hvert einasta skipti sem hún fer að sofa, pabbi hennar má það ekki, og ef ég geri það ekki þá bara hreinlega sofnar hún ekki! (smá pirrandi) Og eins líka þá eltir hún mig út um alla íbúð, það liggur við að ég þurfi að...

Mig vantar alveg rosalega hjálp!! (28 álit)

í Hundar fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Halló hundafólk =) Mig vantar svo rosalega hjálp með hvolpinn minn, hún vill ekki læra það að pissa úti, hún vill bara pissa inni á dagblað, ég hef reynt að fara út með dagblaðið (ferlega asnalegt I know) en það virkar stundum, en oftast pissar hún þó bara INNI!!! Jafnvel þó að ég fari með hana út að ganga í næstum 2 tíma þá heldur dúllan bara í sér þar til inn er komið :( Hún er rúmlega 4 mánaða og ætti því alveg að vera tilbúin að læra þetta, ég fer líka með hana út eftir hverja máltíð,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok