Er einhver alger hundavinur hérna sem hefur áhuga á því að taka að sér hvolpinn minn?
Eins hrikalega erfitt og það er að láta hana fara þá held ég að ég neyðist til þess :(
Stelpan mín er með ofnæmi fyrir henni.
Þetta er fimm mánaða border collie/sjéffer blanda, voðalega góð og hress. Þarf reyndar rosalega mikla athygli vegna þess að hún var tekin frá mömmu sinni 3 vikna gömul.
Þannig að ef einhver þarna úti vill fá góðann félaga í lífið má sá/sú láta mig vita :)´Náttúrulega óþarfi að taka það fram að enginn nema manneskja sem er full alvara með þessu kemur til greina.

Kærar þakkir dúllur og afsakið að ég skuli nota þetta spjall til að auglýsa, held bara að hér ´séu mestar líkur á að finna einhvern sem er innilegur hundavinur :)

Zallý
———————————————–