Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Galdrabúðir á Íslandi (3 álit)

í Dulspeki fyrir 22 árum, 7 mánuðum
Vinkona mín var nýlega að segja mér frá því að mamma hennar hefði fengið lánað hjá vinkonu sinni eitthvað “galdra”dót, og sagði mér m.a. frá einhverskonar kúlu sem að svaraði spurningum. Hún virkaði þannig að maður spurði hana spurninga og hún svaraði annaðhvort með því að snúast í hringi eða sveiflast fram og aftur líkt og pendúll; þessar hreyfingar áttu semsagt að tákna “já” og “nei”. Mér fannst þetta ansi áhugavert og spurði hana hvar þessi kona hefði fengið þetta en hún vissi það ekki....

Til sölu: miðar á COLDPLAY (1 álit)

í Tilveran fyrir 22 árum, 8 mánuðum
Ég hef tvo miða á COLDPLAY sem ég vil losna við. Venjulegt verð er 4500kr, en ég sel þá á 4000 stykkið, og 7500 báða saman. Endilega hafið samband með hjálp skilaboðaskjóðunnar :)

Lýsi eftir tólf strengja gítar sem vantar ástríkan eiganda!! :) (2 álit)

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Um daginn var hann pabbi gamli að segja mér frá því að þegar hann var yngri átti hann tólf strengja gítar og var víst bara nokkuð góður á hann. Ég hafði aldrei séð slíkt apparat og bað hann að sýna mér gripinn og þá hóstaði hann því uppúr sér með grátstafinn í kverkunum að hann hefði þurft að selja hann fyrir einhverju síðan… Nú fór ég að hugsa þar sem gamli maðurinn er að verða fertugur eftir sirka mánuð eða svo, hvort hann yrði ekki ægilega glaður ef að við dæturnar myndum slá saman í...

Ísland hið góða er horfið (2 álit)

í Smásögur fyrir 22 árum, 11 mánuðum
“Ísland hið góða er horfið” Sigur var það sem ég þráði mest. Sigurinn þráði ég fremur en allt annað í gjörvöllum heiminum. Ég þráði svo mikið að vinna, að ég missti sjónar á upphaflegu markmiði mínu. Mun göfugra markmiði, markmið sem þjónaði ekki eingöngu mínum eigin hagsmunum. Ég ætlaði að breyta hugsunarhætti landsmanna. Ég ætlaði að beina hugum þeirra inn á nýjar og áður óþekktar brautir, kynna þau fyrir friði og velsæld. En eitt leiddi af öðru og tilhugsunin um sigur átti hug minn allan....

Frá Himnaríkis til Helvítis (hvað finnst þér?) (10 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 2 mánuðum
Mig langar að biðja ÞIG um að segja mér hvernig þér fannst þessi saga. Ég hef skrifað sögu hérna áður, og fékk voðalega lítil viðbrögð. Ef þér finnst sagan léleg, eða leiðinleg, vinsamlegast notist við uppbyggjandi gagnrýni og segðu mér frekar hvað mætti betur fara, í stað þess að rakka mig niður. Íhugið meininguna bak við orðin, því að á bak við hvert orð, hverja setningu er önnur og djúpstæðari meining. Hér er ég í fyrsta sinn að spreyta mig á að skrifa um þá margumtöluðu hugmynd...

Enn um verkfallið - nýtt sjónarmið (13 álit)

í Deiglan fyrir 23 árum, 3 mánuðum
Nú er kennaraverkfallið enn í öllum framhaldsskólum landsins, að Verslunarskóla Íslands. Mikið hefur verið rætt og ritað um afleiðingar verkfallsins, bæði fyrir nemendur og kennara. En ekki hefur verið mikið hugað að þeim sem nú eru í 10. bekk grunnskóla og þurfa að slást um hituna við alla þá sem ákveðið hafa að endurtaka önnina eða árið. Í tíunda bekk fara margir unglingar að hugsa sér til hreyfings. Fólk er orðið langþreytt á grunnskólagöngu og iðar í skinninu yfir að fara loks að komast...

Calvin and hobbes (14 álit)

í Myndasögur fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Myndasögur eru eiginlega ekki áhugamál hjá mér, þó að ég hafi gaman af að lesa einstaka Mad blað og Andrés Önd. En ég var á leiðinni til útlanda í sumar, og ég fór í bókabúðina í Leifsstöð. Nema hvað, fann ég ekki þessar frábæru bækur, sem heita því frumlega nafni “Calvin and hobbes”. Þetta er í svona garfield stíl, og eru alveg ógeðslega fyndnar. Ef að það er einhver þarna úti sem er alvöru Myndasögu aðdándi legg ég til að þið útvegið ykkur eintak af calvin and hobbes! *Veela*

Enn einn ósköp venjulegur dagur... (2 álit)

í Smásögur fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég vakna á morgnana og lít á klukkuna. “7:00” segir hún. Ég andvarpa venjulega í svona mínútu og bylti mér. Svo hvíli ég mig aðeins lengur á meðan ég hugsa um hvað ég eigi bágt að þurfa að vakna svona snemma. Og það á hverjum einasta degi! Restin af þjóðinni á örugglega auðveldara með að vakna á morgnana. Ég þjáist ábyggilega af einhverjum framandi sjúkdómi sem er svo sjaldgæfur að læknirinn minn hefur aldrei heyrt um hann. Það hlýtur bara að vera. Eftir sjálfsvorkunina reyni ég að...

ljóðið sem talað var um (1 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Þetta er semsagt hið umtalaða ljóð sem var samið í þeim tilgangi að fá fólk til ekki drekka og keyra “I went to a party, mom” I went to a party, mom and remembered what you said You told me not to drink and drive so I had a Sprite instead I felt proud of myself the way you said I would that I didn’t drink and drive though some friends said I should I made a healthy choice and your advice to me was right as the party finally ended, and the kids drove out of sight I got into my car sure to get...

Undirskriftarlisti kynntur með ljóði (5 álit)

í Ljóð fyrir 23 árum, 4 mánuðum
Ég veit nú ekki alveg hvar þessi “pistill” á heima, en hann er um ljóð, þannig að þetta er víst rétti staðurinn. Þannig er mál með vexti að ég sá alveg gríðarlega sorglegt ljóð í síðasta tölublaði Smells. Það bar víst titilinn “I went to a party, mom” og hópur sem stóð fyrir undirskriftalista gegn drukknum ökumönnum samdi þetta ljóð, eftir því sem ég veit best. Þetta ljóð snerti ákveðna strengi í manni ogmér fannst það mjög sorglegt, og tárin flæddu niður kinnarnar eftir því sem leið á...

Búúúúú á Mörð Árnason!!! (9 álit)

í Hugi fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þakka þér kærlega fyrir Mörður Árnason! Mörður nokkur Árnason hefur gjörsamlega rústað okkar möguleikum á að vinna Eurovision. Hann hefur talið útvarpsráð á að láta framlag Íslendinga til keppninnar í ár verða sungið á Íslensku!!! Í síðustu tvem keppnum gekk þeim lögum sem voru sungin á ensku best. Þetta finnst mér nógu góð rök til að hver heilvita maður sjái að við eigum EKKI eftir að vinna í ár, ef að áætlanir Marðar ganga upp. Íslensk fyrirtæki eru búin að vera með þvílíkar herferðir til...

Eitthvað í ólagi? (2 álit)

í Netið fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Er það bara ég eða á einhver annar í vandræðum? Þegar ég skrá i mig inn, kemur upp svona “inni sem Veela, með …stig. Þú átt engin ný skilaboð!” Nema þegar ég fer í pósthólfið mitt eru “skilaboðin” búin að hrannast upp og ég kannski ekki´búin að kíkja lengi vegna þess að forsíðan segir að ég eigi engin ný skilaboð! Er ég kannski eitthvað að rugla? Eru þessi skilaboð ekki e-mail? *Veela*

Tölvuvesen... (6 álit)

í Netið fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég er með forrit í tölvunni minni sem heitir Microsoft Chat. Þessu forriti svipar mjög til gamla góða IRQ-sins, nema að allar skipanir og framkvæmdir eru auðveldari, finnst mér. Nú, nema hvað allt í einu fór ég að fá einherjar villu meldingar. T.d “This program has performed an illegal operation and will be shut down” eða þá blár skjár og skilaboðin “DC-fatal error” með einhverjum tölurunum og veseni. Þá bara slökktist á tölvunni og aumingja ég sat bara hvumsa fyrir framan svartan skjáinn....

Kann einhver að breyta upphafssíðunni? (2 álit)

í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég er með internetáskrift hjá margmiðlun og er orðin hundleið á upphafssíðunni sem kemur upp í hvert einasta andskotans skipti sem ég fer á netið. Þess vegna er ég búin að reyna að breyta upphafssíðunni en ekkert gengur! Þetta er ógeðsleg ljósblá síða sem maður fær ógeð á þegar maður er búin að sjá hana tvisvar, hvað þá tvisvar á dag! Hjálp!! Er einhver þarna úti sem kann að breyta upphafssíðunni? P.s. ég er búin að heyra eitthvað um að maður geti fengið upphafssíðu á torg.is en ég hef engan...

Coldplay diskurinn (6 álit)

í Metall fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég fór nýlega og keypti mér Coldplay diskinn “Parachutes”. Ég verð að segja, þetta er frábær diskur! Þau ykkar sem eiga hann eru örugglega sammála mér. Textarnir eru ágætir og lögin góð, frekar einföld, en söngurinn er stórkostlegur! Rödd söngvarans (hvað heitir hann eiginlega?) er mjúk og blíð og bætir vel upp það sem ef til vill vantar upp á í lögunum og textunum. Eins og ég sagði áður eru lögin frekar einföld en ég myndi þó ekki segja að það væri slæmt. Vegna þess að þegar lögin eru...

Frábært framtak (10 álit)

í Netið fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Ég var að skoða greinar hérna á Huga og sá þá að Huga-stjórnendur hafa bætt við nokkrum nýjum áhugamálum í áhugamálaflóruna. M.a. sá ég flokka sem hétu: Vefsíðugerð,vélbúnaður og netið. ÉG held að Net-flokkurinn sé flokkur sem allir Hugverjar geti notað. Áhugi á netinu er jú eitthvað sem við Hugverjar eigum öll sameiginlegt… Ekki satt? Jæja, ég vildi bara segja að þetta er frábært framtak og gott að sjá að Huga-stjórnendur reyna að koma til móts við notendur! *Veela*
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok