Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Tristen
Tristen Notandi frá fornöld 162 stig

Weightwatchers (1 álit)

í Heilsa fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Vitið þið hvort þessi hópur hérlendis sé með heimasíðu? Sá grein um þetta í vikunni fyrir löngu síðan en man ekki hvað þau kalla sig hérna :/

Chihuahuatík óskast (2 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 6 mánuðum
'Oska eftir hreinræktaðri, loðinni chihuahuatík. Bý í einbýli rétt utan við Reykjavík með stóran garð og frábæra aðstöðu. Nánari uppl. í einkapósti :) Kveðja, T.

Golden Retriever óskar eftir góðu heimili :) (4 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Lúkas er 4 ára Golden Retriever sem vantar nýtt heimili vegna breyttra heimilisaðstæðna. Hann er einstaklega blíður og skapgóður, vanur börnum og öðrum hundum. Hann elskar að fara í göngutúra og fá að hlaupa laus og synda. Hann hefur verið sýndur þrisvar sinnum. Á fyrstu sýningunnu fékk hann 1.sæti og 1.einkunn. Svo 1.einkunn og 2.sæti á hinum sýningunum. Lúkas er undan Emil og Tanju. Ef þið hafið áhuga á að taka að ykkur þennan yndislega hund, endilega sendið mér skilaboð eða tölvupóst á...

Hundur með ofnæmi (5 álit)

í Hundar fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Sælir hugarar! Einn af hundunum mínum, Tímon, sem er þriggja ára chihuahua er búin að vera klóra sér á sama stað á bakinu í svolítinn tíma. Að lokum ákvað ég að fara með hann til dýralæknis óg láta athuga þetta. Þar var mér sagt að hann sé með ofnæmi, en fyrir hverju er hins vegar spurningin. Dýralæknirinn spurði hvort það hefðu orðið einhverjar breytingar og það helsta sem mér datt í hug er að ég flutti í annað húsnæði þar sem er teppi (hann hefur aldrei verið nálægt teppi) og svo það að...

Kettir og hundar (10 álit)

í Kettir fyrir 21 árum
Ég á litla kisu sem er rúmlega þriggja mánaða. Hún er þrílit, grá, gul og hvít.. sem sagt algert krútt. Hún hefur ekki fengið nafn ennþá en þessa stundina er ég að hallast að nafninu 'Ida en það kemur í ljós :) Ég á einnig nokkra hunda. Kisunni semur mjög vel við þá og þau leika sér allan daginn og þess á milli kúrar hún hjá þeim. Um daginn var hún heillengi að leita að spena hjá Kát, íslendingum mínum, en það gekk auðvitað ekki neitt. Hann naut þess samt að fá nudd frá kisu og kippti sér...

ROTTWEILER-EIGENDUR ATH! (1 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 1 mánuði
Við erum að plana að hittast með hundana okkar, jafnvel núna næstkomandi sunnudag en dagsetning og staður er enn óákveðið. Líst ykkur ekki vel á það? Svo er verið að tala um að stofna rottweiler-klúbb en það kemur í ljós með tíð og tíma. Endilega látið mig vita hvenær þið komist og hvar þið viljið hittast… helst ekki Geirsnef en það er líka nóg af stöðum þar sem við getum verið :o) bestu kveðjur, T.

verð á skógarköttum? (3 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Halló allir :) Mig langar til að fá mér norskan skógarkött. Ég var að skoða heimasíðu skógarkattafélagsins en þar er ekkert talað um verð. Vitið þið hvað svona köttur kostar? bestu kveðjur, T.

Ormar!! (4 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Ég var að komast að því að einn af hundunum mínum er með orma. Ég ætla að sjálfsögðu að láta hreinsa alla hundana mína þar sem að nokkuð miklar líkur eru á að þeir séu nú allir smitaðir. En ég var að velta fyrir mér, getur þetta ekki líka borist í fólk??? Og ef það gerist, hvernig er þá tekið á því.. er mannfólk þá líka sett á ormalyf??? Þetta er bara viðbjóður.. vona bara að þessu verði lokið sem fyrst.. kv. Tristen

Óviðunandi hegðun (11 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Jæja kæru hugarar, nú vantar mig ráðleggingar. Þannig er mál með vexti að systir mín á boxer-hund sem er að verða 2ja ára. Hún fékk hann þegar hann var 11 mánaða. Hann er fjörugur eins og gefur að skilja, en mjög blíður og góður hundur. Hún fór með hann á hlýðninámskeið í vor og gekk mjög vel þar. Þau eiga enn eftir að æfa betur innkall og minniháttar hluti en annars hefur allt gengið mjög vel. Nýlega fór hann að taka upp á því að skíta í bílnum, jafnvel þótt hann hafi verið úti í drjúgan...

Royal Arctic Chihuahuas (1 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Er nokkur sem á chihuahua frá þessari ræktun eða þekkir kannski einhvern sem á hund þaðan? Konan heitir Danielle Somers og býr/eða bjó á Akureyri. Hún er ekki með skráð símanúmer, en ég var að velta fyrir mér hvort hún væri enn að rækta chihuahua?? Allar upplýsingar vel þegnar, kv. Tristen

Rafmagnsól??? (6 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Ég var að velta fyrir mér hvort einhver hér hafa einhverntíma notað rafmagnsól á hundinn sinn eða þekki kannski einhvern sem hefur gert það?? Ég á hund sem geltir non-stopp þegar hann er skilinn eftir heima og í bílnum og þetta er aðeins farið að taka á taugarnar. Ég er búinn að fara til hundaþjálfara sem kenndi okkur æfingar, en því miður virkar það ekki. Mér var sagt að ef það virkaði ekki væri lítið hægt að gera og láta hann bara gelta. Það gengur því miður ekki, nágrannanna vegna og mér...

Mjaðmalos (4 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Eitthvað hefur verið í umræðum hér um mjaðmalos. Ég hef heyrt misjafnar skoðanir frá fólki. Sumir vilja meina að þetta sé eingöngu arfgengt og það sé ekkert hægt að gera til að koma í veg fyrir að hundurinn fái mjaðmalos og því megi alveg hreyfa hann o.s.frv. Aðrir segja að þetta sé ekki eingöngu arfgengt, heldur sé hægt að minnka líkurnar á því með því að takmarka hreyfingu til að beinin fái að stækka og styrkjast án mikils álags. Hvað vitið þið um þetta? Kannski einhver sem hefur einhverja...

Hvolpur óskast!! (0 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Mamma mín er að leita sér að hvolpi. Hún vinnur aðeins nokkra tíma á dag, er alltaf komin heim fyrir hádegi svo hann yrði lítið einn. Hún er dýravinur af bestu gerð og myndi hugsa mjög vel um hann. Tegund skiptir ekki öllu máli, en hann þarf helst að vera ódýr eða gefins. Hún getur gefið allar nánari uppl. í síma 698-6269. Kv. T.

Rottweiler og Dobermann (51 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég var að horfa á fréttirnar á Stöð2 í kvöld og sá þar frétt um Rottweiler og Dobermann. Fréttin var um hvort banna ætti þessar tegundir á Íslandi þar sem upp hefðu komið atvik að hundar af þessari tegund hefðu ráðist á fólk, en enn ekki náð að slasa neinn alvarlega(sem betur fer). Tekið var viðtal við hundaeftirlitsmann í Reykjavík og var hann á þeirri skoðun að banna ætti þessar tegundir hér. Hann sagði að í röngum höndum og hundar með lélegt geðslag gætu verið hættulegir. Einnig talaði...

Hundaspjall (3 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 5 mánuðum
Ég var að velta fyrir mér hvers vegna það er aldrei neinn inni á spjallinu? Þægileg leið til að spjalla við fólk um hunda, heima og geima.. :) kv. T

Saga um hvolp frá "hvolpaframleiðslu"... (33 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þetta er saga sem ég fann á sömu heimasíðu og hin sagan er á. Ég ákvað að þýða hana því kannski getur hún breytt hugarfari fólks gagnvart hvolpaframleiðslu. Allavega vakið þau til umhugsunar. Ég veit að þetta er langt, en þið sem nennið að lesa þetta, takk :) Saga um hvolp frá “hvolpa-framleiðslu” - frá sjónarhóli hvolpsins Ég man ekki mikið eftir staðnum þar sem ég fæddist. Þar var þröngt og dimmt og það voru aldrei neinar manneskjur sem léku við okkur. Ég man eftir mömmu og mjúka feldinum...

"Hvernig gastu gert þetta?" (15 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Þetta er smásaga sem ég fann á netinu. Hún snerti mig svo að ég ákvað að snara henni yfir á íslensku og setja hana hér inn. Það er alveg þess virði að lesa hana, fékk mig a.m.k. til að knúsa alla hundana mína og sjá hvað ég er heppin að eiga þá :) “Hvernig gastu gert þetta?” Þegar ég var hvolpur, skemmti ég þér með skrípalátum og fékk þig til að hlæja. Þú kallaðir mig barnið þitt, og þrátt fyrir nokkra nagaða skó og ónýta púða, varð ég besti vinur þinn.Í hvert skipti sem ég var “óþekk”,...

Rottweiler (2 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Vitið þið hvort það sé til einhver íslensk heimasíða um Rottweiler? Hef verið að leita en ekki fundið neina. Einnig langaði mig að spyrja hvort einhver hér eigi Rottweiler? Kveðja, Tristen :)

Kátur er kominn heim! :) (12 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Já, Kátur er loksins kominn heim. :) Það var ég sem átti hann áður en hann var gefinn fyrir um tveimur árum. Eins og pank sagði frá, þá var hann í pössun hjá frænda mínum og ömmu minni því ég lenti í smá húsnæðisvandræðum en vildi alls ekki láta hundinn frá mér. Því bað ég hann að hafa hann fyrir mig á meðan ég fyndi húsnæði þar sem ég mætti hafa Kát hjá mér. Svo var mér sagt seinna að Kátur væri farinn, hefði verið auglýstur í gefins dálkinum í DV og fengið gott heimili. Það var nú aldeilis...

Heimasíðan um hvolpaframleiðslu (1 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Er búið að taka niður síðuna um hvolpaframleiðslu á Íslandi? var að reyna komast inn á hana áðan en það virkar ekkert.. kv, Tristen.

Dobermann (9 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Sælir hugarar! Mig langaði til þess að leita aðeins ráða hjá ykkur. Málið er að ég á ársgamla dobermann tík. Hún er mjög orkumikil og fjörug eins og gefur að skilja, en þó eigum við í smá vanda. Hún hefur látið í ljós árásargirni og það er nokkuð sem ég vil binda enda á strax. Henni virðist vera sérstaklega illa við fólk á hjóli og ég þarf sérstaklega að passa mig á því þegar ég fer með hana út. Einnig ef ég fer með hana ásamt hinum hundunum eitthvað út (t.d. Öskjuhlíð) þá passar hún hina...

Chevy Monte Carlo/ Toyota Celica Supra til sölu!! (3 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Tilboð óskast í Chevrolet Monte Carlo árg.´78, rauður og svartur, skoðaður ´03. Tilboð óskast einnig í Toyota Supra árg.´85, blár tvílitur, ekki á númerum. Hafið samband, anya@mmedia.is

Gelding (16 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Ég var á Geirsnefi fyrir nokkru með tvo af hundunum mínum og búið er að gelda annan þeirra. Þar hitti ég konu sem sagði að það mætti alls ekki gelda hunda. Það myndi algerlega eyðileggja þá og væri grimmdarverk gagnvart dýrinu. Ástæðan fyrir því að ég lét gelda hann er sú, að hann merkti allt, hvort sem það var innan eða utan dyra og þegar hann fór að pissa á fólk líka ákvað ég að láta gelda hann. Ég ráðfærði mig við hundaþjálfara sem sagði mér að fylgjast vel með honum og skamma hann...

Toyota Celica Supra óskast!!! (2 álit)

í Bílar fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Ég er að leita að T.C.S., ´85 eða eldri, í hvaða ásigkomulagi sem er. Endilega hafið samband ef þið viljið losna við einn slíkan eða vitið um einhvern sem á þannig bíl til sölu.

Chihuahua (5 álit)

í Hundar fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Mér datt í hug að spyrja ykkur hvort einhver ykkar, eða einhver sem þið þekkið, eigi chihuahua tík sem vantar kærasta? Mig langar að setja annan hundinn minn á tík, vandamálið er bara að finna hana. Það er mynd af honum inni á hvuttar.net. Hann heitir Sebastian Aron og er alger dúlla. Hann er frá Dalsmynni, mjög geðgóður og rólegur. Endilega látið mig vita ef þið vitið um einhverja stelpu handa honum :)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok