Lúkas er 4 ára Golden Retriever sem vantar nýtt heimili vegna breyttra
heimilisaðstæðna. Hann er einstaklega blíður og skapgóður, vanur börnum og öðrum hundum. Hann elskar að fara í göngutúra og fá að hlaupa laus og synda. Hann hefur verið sýndur þrisvar sinnum. Á fyrstu sýningunnu fékk hann 1.sæti og 1.einkunn. Svo 1.einkunn og 2.sæti á hinum sýningunum. Lúkas er undan Emil og Tanju.
Ef þið hafið áhuga á að taka að ykkur þennan yndislega hund, endilega sendið mér skilaboð eða tölvupóst á assa66@hotmail.com. Vinsamlegast segið aðeins frá ykkur, fjölskyldustærð, aðstaða, reynsla af hundum eða bara hvað sem ykkur dettur í hug. Einnig væri gaman að fá að heyra hvers vegna ykkur langar í Golden Retriever.

kveðja, T